Öruggur sigur á FH í kvöld

Adam Haukur átti flottan leik i kvöld en hér er hann ásamt pabba sínum, Petr Baumruk, um síðustu helgi að fagna bikarmeistaratitlinumÞað er oft þannig að þegar lið vinnur bikarmeistaratitilinn að næsti leikur á eftir verði erfiður en það var ekki raunin í kvöld þegar Haukarpiltar tóku á móti FH. Jafnræði var með liðunum í byrjun en í lok fyrri hálfleiks náðu Haukar tveggja marka forystu, 15 – 13. Síðar hálfleikur var Hauka og oft á tíðum ótrúlegt andleysi sem virtist vera í FH liðinu. Lokaniðurstaðan var öruggur sex marka sigur, 31 – 25.
Í lið Hauka vantaði Sigurberg Sveinsson en ákveðið var að hvíla hann þar sem mikið álag bikarhelgarinnar hafði orskað smá vökva inn á hné. Enn og aftur sýndu Haukar að það vantar ekki breiddina í þennan hóp, spiluðu saman sem lið og uppskáru sanngjarnan sigur. Mörkin dreifðust á marga leikmenn eins og vill verða þegar lið spilar vel saman og allir leikmenn fá að koma við sögu.

Mörk Hauka: Elías Már Halldórsson 6, Þórður Rafn Guðmundsson 6/4, Adam Haukur Baumruk 6, Árni Steinn Steinþórsson 5, Einar Pétur Pétursson 4, Tjörvi Þorgeirsson 1, Jón Þorbjörn Jóhannsson 1, Jónatan Ingi Jónsson 1, Matthías Árni Ingimarsson 1.

Giedrius Morkunas varði 15 skot og Einar Ólafur 1.

Næsti leikur Haukar er útileikur gegn HK og fer hann fram í Digranesi fimmtudaginn 13. mars kl. 19:30.

Í hálfleik var skemmtileg uppákoma þar sem nokkrar þekktar kempur áttust við í þremur boltaþrautum. Frá Haukum voru þetta Petr Baumruk og Halldór Ingólfsson og frá FH Guðjón Árnason og Lárus Long. Ekki gengu fyrstu tvær þrautirnar vel en í síðustu þrautinni skoruðu Haukar 2 stig á meðan FH skoraði 1, þannig að Haukakempurnar hrósuðu sigri.

Áfram Haukar!

Similar Posts

  • Golfmót Hauka frekari upplýsingar!

    Vinsamlegast athugið. Mótsgjaldið í Haukamótið 2026 er kr 8.000,00. Skráning í Haukamótið hefst kl. 12.00 þann 18. september og skráningu lýkur 24. september kl. 20.00. Þátttökugjald er kr. 8.000 og greiðist við skráningu. Haukafélagar, konur og karlar, hafa þátttökurétt í mótinu, en félagsaðild í golfklúbbi er skilyrði fyrir þátttöku. Nefndin

  • Haukamótið í golfi 2026.

    Haukamótið verður haldið á Hvaleyrarvelli, föstudaginn 25. september nk. Opnað verður fyrir skráningu í Golfboxinu kl. 12.00 þann 18. september og skráningu lýkur 24. september kl. 20.00. Þátttökugjald er kr. 8.000 og greiðist við skráningu. Haukafélagar konur og karlar hafa þátttökurétt í mótinu, en félagsaðild í golfklúbbi er skilyrði fyrir þátttöku. Keppt verður til verðlauna…

  • Andlátsfrétt.

    Laugardaginn 13. júní síðastliðinn barst sú harmafregn að einn af öflugustu stuðningsmönnum Hauka, Guðjón Ágúst Sigurðarson, væri látinn. Guðjón og Herborg, eiginkona  hans, hafa starfað sem sjálfboðaliðar hjá handknattleiksdeild Hauka  áratugum saman og stuðningur þeirra við starf deildarinnar er ómetanlegt.  Guðjón sat í stjórn   handknattleiksdeildar Hauka um margra ára skeið, allt til dánardags. Við fráfall…

  • Lokahóf Hauka – Verðlaunahafar og kveðjur eftir tímabilið 2025–2026

    Handknattleiksdeild Hauka hélt lokahóf sitt í vikunni þar sem leikmenn, þjálfarar og sjálfboðaliðar komu saman og fögnuðu flottu tímabili. Fjölmargir einstaklingar voru heiðraðir fyrir frammistöðu sína og framlag til félagsins – og jafnframt kvöddum við nokkra leikmenn sem halda nú á ný mið eftir verðugt og mikilvægt starf í rauðu treyjunni. Verðlaunahafar tímabilsins Meistaraflokkur kvenna…

  • Sumaríþróttaskóli Hauka 2026

    Sumaríþróttaskóli Hauka 2026   Íþróttaskóli Hauka verður starfræktur sumarið 2026 fyrir börn fædd 2014-2019, en skólinn hefur verið starfræktur frá árinu 2007. Íþróttaskólinn er sameiginlegt verkefni allra deilda félagsins þar sem lögð er áhersla á fjölbreytta hreyfingu, þjálfun og námskeið við allra hæfi. Gert er ráð fyrir að iðkendur fái að kynnast sem flestum íþróttagreinum…