Sigur í síðasta deildarleik fyrir frí

Matthías Árni og félagar í Haukavörninni tóku seint við sér en þegar hún small snérist leikurinn og góður sigur varð staðreyndMeistaraflokkur karla í handbolta lék í gær, fimmtudag, sinn síðasta heimaleik og deildarleik fyrir jóla- og EM frí og voru mótherjarnir Íslandsmeistarar Fram. Fyrir leikinn voru Haukar í 1. sæti með 15 stig og Fram var í 3. sæti með 12 stig því var búist við hörkuleik og sérstaklega í ljósi þess að Fram vann fyrri leik liðanna í Olísdeildinni 18 – 17.

Frammarar mættu grimmir til leiks og komust fljótlega í  1 – 4 og áttu Haukastrákarnir í stökustu vændræðum með varnarleik gestanna sem og að ná takti í sinn varnarleik. Þegar hálfleikurinn var hálfnaður þá voru gestirnir komnir í 3 – 8. Ekki var seinni helmingur fyrri hálfleiks betri þar sem fyrrverandi Haukamaðurinn, Sveinn Þorgeirsson, gerði Haukastrákum lífið leitt sem og markmaðurinn Stephen Nielsen og voru Frammarar með gott forskot í hálfleik 12 – 6.

Seinni hálfleikur byrjaði allveg eins og þróunin hafði verið í fyrri hálfleiknum eða þannig að Haukar áttu í vandræðum með að koma boltanum í netið hjá Fram og þegar seinni hálfleikur var tæplega hálfnaður var staðan 9 – 15 gestunum í vil. En þá loksins tóku Haukastrákarnir við sér og vörnin fór að smella og fór það þannig að Haukastrákarnir unnu síðari helming seinni hálfleiks 11 – 2 og náðu að landa mikilvægum endurkomusigri 20 – 17.

Heilt yfir var þetta ekki góður leikur hjá Haukapiltum en það er víst dæmi um gott lið að ná að landa sigri þó að spilamennskan hafi ekki verið góð. Árni Steinn var markahæstur Haukanna í leiknum með 5 mörk og Þórður Rafn átti líka góða spretti og skoraði 4 mörk. Adam Haukur kom líka sterkur inn í vörnina í seinni hálfleik og vann ófáa bolta. Giedrius varði mest í marki Hauka eða 8 skot sem nægði honum til 40% markvörslu.

Næsti leikur Hauka er bikarleikur gegn Víkingi í Víkinni á sunnudag kl. 20:00. Fyrir jólafrí eiga strákarnir líka eftir að leika í deildarbikarnum sem leikinn verður 13. og 14. desember en tímasetning á leik Hauka sem og mótherji liggur ekki fyrir.

Áfram Haukar!

Similar Posts

  • Golfmót Hauka frekari upplýsingar!

    Vinsamlegast athugið. Mótsgjaldið í Haukamótið 2026 er kr 8.000,00. Skráning í Haukamótið hefst kl. 12.00 þann 18. september og skráningu lýkur 24. september kl. 20.00. Þátttökugjald er kr. 8.000 og greiðist við skráningu. Haukafélagar, konur og karlar, hafa þátttökurétt í mótinu, en félagsaðild í golfklúbbi er skilyrði fyrir þátttöku. Nefndin

  • Haukamótið í golfi 2026.

    Haukamótið verður haldið á Hvaleyrarvelli, föstudaginn 25. september nk. Opnað verður fyrir skráningu í Golfboxinu kl. 12.00 þann 18. september og skráningu lýkur 24. september kl. 20.00. Þátttökugjald er kr. 8.000 og greiðist við skráningu. Haukafélagar konur og karlar hafa þátttökurétt í mótinu, en félagsaðild í golfklúbbi er skilyrði fyrir þátttöku. Keppt verður til verðlauna…

  • Andlátsfrétt.

    Laugardaginn 13. júní síðastliðinn barst sú harmafregn að einn af öflugustu stuðningsmönnum Hauka, Guðjón Ágúst Sigurðarson, væri látinn. Guðjón og Herborg, eiginkona  hans, hafa starfað sem sjálfboðaliðar hjá handknattleiksdeild Hauka  áratugum saman og stuðningur þeirra við starf deildarinnar er ómetanlegt.  Guðjón sat í stjórn   handknattleiksdeildar Hauka um margra ára skeið, allt til dánardags. Við fráfall…

  • Lokahóf Hauka – Verðlaunahafar og kveðjur eftir tímabilið 2025–2026

    Handknattleiksdeild Hauka hélt lokahóf sitt í vikunni þar sem leikmenn, þjálfarar og sjálfboðaliðar komu saman og fögnuðu flottu tímabili. Fjölmargir einstaklingar voru heiðraðir fyrir frammistöðu sína og framlag til félagsins – og jafnframt kvöddum við nokkra leikmenn sem halda nú á ný mið eftir verðugt og mikilvægt starf í rauðu treyjunni. Verðlaunahafar tímabilsins Meistaraflokkur kvenna…

  • Sumaríþróttaskóli Hauka 2026

    Sumaríþróttaskóli Hauka 2026   Íþróttaskóli Hauka verður starfræktur sumarið 2026 fyrir börn fædd 2014-2019, en skólinn hefur verið starfræktur frá árinu 2007. Íþróttaskólinn er sameiginlegt verkefni allra deilda félagsins þar sem lögð er áhersla á fjölbreytta hreyfingu, þjálfun og námskeið við allra hæfi. Gert er ráð fyrir að iðkendur fái að kynnast sem flestum íþróttagreinum…