Baráttusigur Hauka í háspennuleik í Schenkerhöllinni

Einar Pétur var flottur í kvöld og skoraði 8 mörkÍ kvöld tóku Haukapiltar á móti ÍR í Olísdeild karla. Leikurinn var nokkuð jafn allan tímann en í hálfleik höfðu gestirnir úr Breiðholti eins marks forystu, 15 – 16. Síðari hálfleikur byrjaði ekki nógu vel hjá Haukum og eftir 10 mínútur voru ÍR ingar komnir með 4 marka forystu, 18 – 22. En seigla var í Haukamönnum og smá saman náðu þeir að saxa á forskotið og þegar 10 mínútur voru eftir þá náðu Haukar að jafna þegar Einar Pétur skoraði úr víti. Aftur var allt í járnum en síðustu mínúturnar voru Hauka og þeir lönduðu að lokum öruggum tveggja marka sigri, 30 -28.

Haukaliðið lék án síns markahæsta leikmanns, Sigurbergs Sveinssonar, en hann meiddist á ökkla í leiknum úti gegn Benfica en er óðum að koma til og verður vonandi leikfær von bráðar. Haukar sýndu í kvöld að með baráttu og leikgleði að vopni þá geta þeir landað sigri gegn hvaða liði sem er í þessari deild. Leikurinn var ótrúlega spennandi síðustu mínúturnar og það voru brosandi Haukar sem gengu út úr Schenkerhöllinni í kvöld, enda ástæða til að gleðjast.

Leikurinn í kvöld var sigur liðsheildarinnar en markahæstir voru Einar Pétur og Árni Steinn báðir með 8 mörk og með skínandi leik. Einnig var Adam Haukur með gott framlag, sérstaklega síðustu 10 mínúturnar þar sem hann fór ítrekað illa með vörn ÍR inga og var m.a. tekið af honum vítakast sem allir í Schenkerhöllinni sáu að var 100% víti en dómarinn reyndist á undraverðan hátt ekki á sama máli. Giedrius átti líka fína spretti í markinu og varði nokkra mjög mikilvæga bolta þegar leið á seinni hálfleik, þar á meðal víti frá einni bestu vítaskyttu deildarinnar. 

Áfram Haukar!

 

Similar Posts

  • Golfmót Hauka frekari upplýsingar!

    Vinsamlegast athugið. Mótsgjaldið í Haukamótið 2026 er kr 8.000,00. Skráning í Haukamótið hefst kl. 12.00 þann 18. september og skráningu lýkur 24. september kl. 20.00. Þátttökugjald er kr. 8.000 og greiðist við skráningu. Haukafélagar, konur og karlar, hafa þátttökurétt í mótinu, en félagsaðild í golfklúbbi er skilyrði fyrir þátttöku. Nefndin

  • Haukamótið í golfi 2026.

    Haukamótið verður haldið á Hvaleyrarvelli, föstudaginn 25. september nk. Opnað verður fyrir skráningu í Golfboxinu kl. 12.00 þann 18. september og skráningu lýkur 24. september kl. 20.00. Þátttökugjald er kr. 8.000 og greiðist við skráningu. Haukafélagar konur og karlar hafa þátttökurétt í mótinu, en félagsaðild í golfklúbbi er skilyrði fyrir þátttöku. Keppt verður til verðlauna…

  • Andlátsfrétt.

    Laugardaginn 13. júní síðastliðinn barst sú harmafregn að einn af öflugustu stuðningsmönnum Hauka, Guðjón Ágúst Sigurðarson, væri látinn. Guðjón og Herborg, eiginkona  hans, hafa starfað sem sjálfboðaliðar hjá handknattleiksdeild Hauka  áratugum saman og stuðningur þeirra við starf deildarinnar er ómetanlegt.  Guðjón sat í stjórn   handknattleiksdeildar Hauka um margra ára skeið, allt til dánardags. Við fráfall…

  • Lokahóf Hauka – Verðlaunahafar og kveðjur eftir tímabilið 2025–2026

    Handknattleiksdeild Hauka hélt lokahóf sitt í vikunni þar sem leikmenn, þjálfarar og sjálfboðaliðar komu saman og fögnuðu flottu tímabili. Fjölmargir einstaklingar voru heiðraðir fyrir frammistöðu sína og framlag til félagsins – og jafnframt kvöddum við nokkra leikmenn sem halda nú á ný mið eftir verðugt og mikilvægt starf í rauðu treyjunni. Verðlaunahafar tímabilsins Meistaraflokkur kvenna…

  • Sumaríþróttaskóli Hauka 2026

    Sumaríþróttaskóli Hauka 2026   Íþróttaskóli Hauka verður starfræktur sumarið 2026 fyrir börn fædd 2014-2019, en skólinn hefur verið starfræktur frá árinu 2007. Íþróttaskólinn er sameiginlegt verkefni allra deilda félagsins þar sem lögð er áhersla á fjölbreytta hreyfingu, þjálfun og námskeið við allra hæfi. Gert er ráð fyrir að iðkendur fái að kynnast sem flestum íþróttagreinum…