2.flokkur karla í handknattleik leikur í undanúrslitum um Íslandsmeistaratitilinn í kvöld. Leikið verður í Strandgötu og hefst leikurinn 20:30. Mótherjar Hauka í leiknum er Afturelding frá Mosfellsbæ.
Haukaliðið lenti í 2.sæti í deildarkeppninni og tapaði síðan í úrslitaleik bikarkeppninnar fyrr í vetur gegn erkifjéndunum í FH.
Afturelding lenti í 6.sæti í deildinni, átta stigum á eftir Haukum. Þessi sömu lið hafa mæst tvisvar sinnum í vetur og hafa liðin skipst á sigri.
Við hvetjum alla Haukara til að fjölmenna í Strandgötuna í kvöld og sjá hvort liðið kemst í sjálfan úrslitaleikinn, en það lið mætir annað hvort FH eða Val.