Stutt viðtal við Aron Kristjáns í tilefni af byrjun tímabils

Haukar Í tilefni af leikjum Hauka við lið HC Mojkovac frá Svartfjallalandi fékk heimasíðan Aron Kristjánsson þjálfara karlaliðs Hauka í handbolta og nýráðinn landsliðsþjálfara til þess að svara nokkrum spurningum tengdum komandi tímabili og leikjunum tveimur um helgina.

,,Mér líst ágætlega á veturinn. Það verður væntanlega hörð barátta um titlana í vetur og sæti í úrslitakeppninni í vor,“ sagði Aron spurður um hvernig sér litist á komandi tímabil í boltanum.

Varðandi Haukaliðið sjálft fyrir tímabilið hafði hann þetta að segja: ,,Liðið er aðeins breytt frá því í fyrra. Ég held að við höfum náð að fylla vel í þó skörð sem höggin voru í hópinn og því komið ágætlega út úr þeim breytingum. Við virðumst vera með meiri breidd en í fyrra og lítum vel út varnarlega. Við munum síðan styrkjast enn frekar sóknarlega þegar Sigurbergur Sveinsson byrjar að spila með okkur. En hann fór í hnéaðgerð í lok júní og vonandi verður hann orðinn leikfær í lok október eða byrjun nóvember.„

HC Mojkovac frá Svartfjallalandi er andstæðingur Hauka í tveimur Evrópuleikjum nú um helgina, fyrri leikurinn fer fram í dag kl.18:00 og sá seinni á morgun kl.17:00. Aron segir að allir í Haukaliðinu, utan Sigurbergs Sveinssonar, séu klárir i leikina tvo. Hann hefur hins vegar lítið náð að kynna sér andstæðingin. ,,Það er erfitt að meta raunverulegan styrk þessa liðs. Við erum með myndir af tveimur leikjum frá þeim frá því í fyrra en liðið er eitthvað breytt í ár. Ég tel þó að við séum sigurstranglegri í tveimur leikjum á heimavelli,“ sagði Aron að lokum.

 

 

Similar Posts

  • Golfmót Hauka frekari upplýsingar!

    Vinsamlegast athugið. Mótsgjaldið í Haukamótið 2026 er kr 8.000,00. Skráning í Haukamótið hefst kl. 12.00 þann 18. september og skráningu lýkur 24. september kl. 20.00. Þátttökugjald er kr. 8.000 og greiðist við skráningu. Haukafélagar, konur og karlar, hafa þátttökurétt í mótinu, en félagsaðild í golfklúbbi er skilyrði fyrir þátttöku. Nefndin

  • Haukamótið í golfi 2026.

    Haukamótið verður haldið á Hvaleyrarvelli, föstudaginn 25. september nk. Opnað verður fyrir skráningu í Golfboxinu kl. 12.00 þann 18. september og skráningu lýkur 24. september kl. 20.00. Þátttökugjald er kr. 8.000 og greiðist við skráningu. Haukafélagar konur og karlar hafa þátttökurétt í mótinu, en félagsaðild í golfklúbbi er skilyrði fyrir þátttöku. Keppt verður til verðlauna…

  • Andlátsfrétt.

    Laugardaginn 13. júní síðastliðinn barst sú harmafregn að einn af öflugustu stuðningsmönnum Hauka, Guðjón Ágúst Sigurðarson, væri látinn. Guðjón og Herborg, eiginkona  hans, hafa starfað sem sjálfboðaliðar hjá handknattleiksdeild Hauka  áratugum saman og stuðningur þeirra við starf deildarinnar er ómetanlegt.  Guðjón sat í stjórn   handknattleiksdeildar Hauka um margra ára skeið, allt til dánardags. Við fráfall…

  • Lokahóf Hauka – Verðlaunahafar og kveðjur eftir tímabilið 2025–2026

    Handknattleiksdeild Hauka hélt lokahóf sitt í vikunni þar sem leikmenn, þjálfarar og sjálfboðaliðar komu saman og fögnuðu flottu tímabili. Fjölmargir einstaklingar voru heiðraðir fyrir frammistöðu sína og framlag til félagsins – og jafnframt kvöddum við nokkra leikmenn sem halda nú á ný mið eftir verðugt og mikilvægt starf í rauðu treyjunni. Verðlaunahafar tímabilsins Meistaraflokkur kvenna…

  • Sumaríþróttaskóli Hauka 2026

    Sumaríþróttaskóli Hauka 2026   Íþróttaskóli Hauka verður starfræktur sumarið 2026 fyrir börn fædd 2014-2019, en skólinn hefur verið starfræktur frá árinu 2007. Íþróttaskólinn er sameiginlegt verkefni allra deilda félagsins þar sem lögð er áhersla á fjölbreytta hreyfingu, þjálfun og námskeið við allra hæfi. Gert er ráð fyrir að iðkendur fái að kynnast sem flestum íþróttagreinum…