Slæmt tap gegn Gróttu

Aron Kristjáns var eðlilega svekktur í gær. Mynd: Eyjólfur Garðarsson (sport.is)Strákarnir okkar geta laglega nagað sig í handbökin eftir slæmt tap gegn Gróttu í N1-deild karla í handbolta í gærkvöld gegn botnliði Gróttu. Fyrirfram hefði mátt búast við auðveldum sigri okkar manna þar sem Haukar voru efstir í deildinni en drengirnir af Seltjarnesi voru neðstir og einungis búnir að ná sér í eitt stig sem kom í fyrstu umferð deildarinnar.

Leikurinn var jafn framan af og fram að hálfleik þegar staðan var 13-12 heimamönnum í Gróttu í vil. Það var hins vegar fyrri hluti seinni hálfleiks sem algjörlega fór með leikinn og þrátt fyrir ágætis endasprett hjá strákunum var bilið einfaldlega orðið of mikið og svo fór að Grótta fór með 23-20 sigur af hólmi. 

Örlítið huggun harmi gegn er þó að FH beið einnig lægri hlut í leik sínum í gærkvöld og eru strákarnir því áfram jafnir FH á stigum á toppi N1 deildarinnar en Akureyringar anda ofan í hálsmál okkar Hafnfirðinga og eru einungis einu stigi á eftir FH og Haukum. 

Markahæstir í liði Hauka: Stefán Rafn Sigurmansson 9 mörk og Freyr Brynjarsson 4. Birkir Ívar Guðmundsson varði 6 skot og Aron Rafn Eðvarðsson 8.

Similar Posts

  • Golfmót Hauka frekari upplýsingar!

    Vinsamlegast athugið. Mótsgjaldið í Haukamótið 2026 er kr 8.000,00. Skráning í Haukamótið hefst kl. 12.00 þann 18. september og skráningu lýkur 24. september kl. 20.00. Þátttökugjald er kr. 8.000 og greiðist við skráningu. Haukafélagar, konur og karlar, hafa þátttökurétt í mótinu, en félagsaðild í golfklúbbi er skilyrði fyrir þátttöku. Nefndin

  • Haukamótið í golfi 2026.

    Haukamótið verður haldið á Hvaleyrarvelli, föstudaginn 25. september nk. Opnað verður fyrir skráningu í Golfboxinu kl. 12.00 þann 18. september og skráningu lýkur 24. september kl. 20.00. Þátttökugjald er kr. 8.000 og greiðist við skráningu. Haukafélagar konur og karlar hafa þátttökurétt í mótinu, en félagsaðild í golfklúbbi er skilyrði fyrir þátttöku. Keppt verður til verðlauna…

  • Andlátsfrétt.

    Laugardaginn 13. júní síðastliðinn barst sú harmafregn að einn af öflugustu stuðningsmönnum Hauka, Guðjón Ágúst Sigurðarson, væri látinn. Guðjón og Herborg, eiginkona  hans, hafa starfað sem sjálfboðaliðar hjá handknattleiksdeild Hauka  áratugum saman og stuðningur þeirra við starf deildarinnar er ómetanlegt.  Guðjón sat í stjórn   handknattleiksdeildar Hauka um margra ára skeið, allt til dánardags. Við fráfall…

  • Lokahóf Hauka – Verðlaunahafar og kveðjur eftir tímabilið 2025–2026

    Handknattleiksdeild Hauka hélt lokahóf sitt í vikunni þar sem leikmenn, þjálfarar og sjálfboðaliðar komu saman og fögnuðu flottu tímabili. Fjölmargir einstaklingar voru heiðraðir fyrir frammistöðu sína og framlag til félagsins – og jafnframt kvöddum við nokkra leikmenn sem halda nú á ný mið eftir verðugt og mikilvægt starf í rauðu treyjunni. Verðlaunahafar tímabilsins Meistaraflokkur kvenna…

  • Sumaríþróttaskóli Hauka 2026

    Sumaríþróttaskóli Hauka 2026   Íþróttaskóli Hauka verður starfræktur sumarið 2026 fyrir börn fædd 2014-2019, en skólinn hefur verið starfræktur frá árinu 2007. Íþróttaskólinn er sameiginlegt verkefni allra deilda félagsins þar sem lögð er áhersla á fjölbreytta hreyfingu, þjálfun og námskeið við allra hæfi. Gert er ráð fyrir að iðkendur fái að kynnast sem flestum íþróttagreinum…