Spennan magnast í stórmeistaraslag Hauka og Vals – Allir á Ásvelli í kvöld!

Liðið sem vinnur þrjá leiki verður ÍslandsmeistariÞriðji leikur Hauka og Vals í úrslitaeinvíginu um Íslandsmeistaratitilinn í N1 deild karla fer fram að Ásvöllum í kvöld kl. 19:30. Staðan í rimmunni er 1-1 eftir að hvort lið hefur unnið á heimavelli sínum. Gríðarlega góð stemmning var á Ásvöllum í fyrsta leiknum og má gera ráð fyrir að hún verði enn betri í kvöld enda mikið í húfi og spennan að magnast. Haukaliðið er staðráðið í að sýna betri leik, einkum sóknarlega, en það hefur sýnt í úrslitaeinvíginu til þessa. Þeir munu mæta til leiks með einbeittan sigurvilja að vopni og mikla samstöðu. Strákarnir treysta á stuðning áhorfenda enda hefur það margsýnt sig að stuðningurinn skiptir sköpum í leikjum sem þessum. Það er því óhætt að hvetja alla handbolaunnendur til að fjölmenna á Ásvelli, styðja dyggilega við sitt lið og sjá hörkuleik í glæsilegri umgjörð. Allir á Ásvelli!