Valur jafnaði metin í úrslitaeinvíginu

Björgvin náði sér ekki á strik í öðrum leiknumValur sigraði annan leikinn í úrslitaeinvíginu á sunnudaginn 22-20 og jafnaði þar með metin 1-1. Hlíðarendadrengirnir höfðu frumkvæðið allan leikinn á heimavelli sínum og tókst að halda forystunni þótt Haukaliðið þjarmaði að þeim undir lok leiks. Sóknarleikur Hauka varð liðinu að falli en liðið skoraði aðeins fimm mörk á hverju korteri í leiknum. Sigurbergur Sveinsson var markahæstr Hauka með 11 mörk en aðrir skoruðu 1-2 mörk sem segir sína sögu. Markvarslan var ennfremur langt frá sínu besta en Aron Rafn varði 7 skot og Birkir Ívar 6 á sama tíma og Valsmenn vörðu 20 skot hinum megin. Spennustigið virtist hátt hjá nokkrum lykilleikmönnum Hauka og létu Freyr og Elli t.d. reka sig út af fyrir ýmist að segja eitthvað við dómarann eða ýta við andstæðingi eftir að búið var að dæma. Haukaliðið getur því gert mun betur en það sýndi á sunnudaginn og spilað miklu betur saman sem lið. Næsti leikur fer fram í dag á Ásvöllum kl. 19:30.

Það var ljóst frá byrjun að Valsmenn voru betur stemmdir fyrir leikinn. Þeir byrjuðu af miklum krafti og náðu strax góðri forystu. Aron Kristjánsson tók þá leikhlé og smám saman minnkuðu Haukar muninn uns staðan var 10-9 þegar 25 mínútur voru liðnar. Í stað þess að ná að jafna metin misstu Haukarnir hins vegar Valsmenn aftur lengra frá sér og var þriggja marka munur í háfleik 14-11 eftir umdeilt mark Arnórs Þórs í síðustu sókn hálfleiksins.

Haukar fóru svo illa að ráði sínum á fyrstu 10 mínútunum í seinni hálfleik þar sem Elli lét m.a. reka sig út af fyrir kjaft í 4 mínútur og síðan fór Sigurbergur út af fyrir brot og voru Valsmenn því tveimur fleiri og komust í 5 marka forystu 18-13. Enn var fimm marka forysta 21-16 þegar einungis 13 mín voru til leiksloka. Þá var eins og Haukaliðið vaknaði af vænum blundi og skoruðu fjögur mörk í röð 21-20. Tjörvi Þorgeirsson átti góða innkomu í sóknarleikinn sem varð hraðari og breiðari fyrir vikið. Valsmenn höfðu boltann þegar um 40 sekúndur voru eftir og voru einum færri. Höndin var kominn upp og virtust Haukar eiga séns á að endurtaka leikinn frá fyrsta leiknum. Aron Kristjánsson fékk hins vegar gult spjald og þá fór hendin niður og Valsmenn gátu spilað lengur og enduðu sóknina með marki frá Arnóri og unnu verðskuldaðan sigur.