Stórleikur á Ásvöllum í kvöld, Haukar – Valur

Í kvöld fer fram stórleikur í N1-deild karla á Ásvöllum þegar heimamenn í Haukum taka á móti systra félagi sínu, Val. Leikurinn hefst klukkan 19:30 en það er heil umferð leikin í kvöld í N1-deild karla á sama tíma.

Það eru einungis fjórar umferðir eftir af deildinni og fara leikar að skýrast á næstu vikum. Haukar sitja sem fastast á toppi deildarinnar þar sem þeim líður best með 28 stig en næsta lið er Akureyri með 22 stig en þeir mæta Fram á Akureyri í kvöld.

 

HK eru svo í þriðja sæti deildarinnar með 20 stig og næsta koma Valur og FH með 19 stig. Valur þarf því nauðsynlega á sigri að halda í kvöld en leikur þeirra hefur verið brösóttur í undanförnum leikjum og hafa þeir einungis fengið fjögur stig í síðustu sex leikjum í deildinni og í milli tíðinni töpuðu þeir stórt í bikarúrslitaleiknum gegn einmitt, Haukum.

 

Við hvetjum Haukafólk að fjölmenna þenann stórleik á Ásvöllum en með hagstæðum úrslitum í kvöld geta Haukar tryggt sér deildameistara titilinn þriðja árið í röð! oooooooog N 1 (enn einn) titilinn.

Aðrir leikur í kvöld:
Akureyri – Fram
FH – Grótta
Stjarnan – HK

Tveir leikir verða í beinni á Sporttv.is, Haukar – Valur og svo leikur FH og Gróttu.