Haukar – Víkingur á Ásvöllum í kvöld

HaukarÍ kvöld fer fram leikur Hauka og Víkings í N1-deild kvenna en leikurinn fer fram á parketinu á Ásvöllum. Hefst leikurinn klukkan 19:30.

Haukar unnu um helgina leik sinn gegn HK nokkuð örugglega, eða 41-28. Víkingstelpur töpuðu hinsvegar enn einum leiknum í enn einn deildinni þegar þær mættu Stjörnunni í Víkinni en leikurinn endaði 17-43.

 

Haukaliðið er eins og áður í 4.sæti deildarinnar og búnar að tryggja sér inn í úrslitakeppnina. Víkingur er hinsvegar á botni deildarinnar með 0 stig og með 469 mörk í mínus.

 

Það má búast við markasúpu á Ásvöllum í kvöld og er þá ekki í hæfi við að fá sér eina rjómalagaðasúpu heima og skella sér svo í eftirréttinn á Ásvöllum í kvöld. Við mælum hiklaust með þeirri blöndu.

Allir á völlinn – Áfram Haukar!