Haukar fara í Höllina

Sigurbergur var sterkur í liði Hauka gegn HKHaukar leika til úrslita um bikarmeistaratitilinn 27. febrúar nk. Þetta varð ljóst þegar Haukar sigruðu HK örugglega á Ásvöllum, 26-20, á laugardag. Strákarnir mættu gríðarlega einbeittir til leiks og virtust hreinlega ætla að kafsigla gestina frá Kópavogi. Sigurbergur Sveinsson var óstöðvandi í fyrri hálfleik og skoraði mörk í öllum regnboganslitum. Varnarleikur liðsins var mjög þéttur og Birkir Ívar sterkur að vanda. HK skoraði einungis eitt mark á fyrstu fimmtán mínútum leiksins og áttu engin svör gegn sterkri 5-1 vörn þeirra rauðklæddu. HK-liðið náði aldrei að tefla sigri Hauka í tvísýnu og lauk leiknum með sex marka mun. Það verður því Haukadagur í Höllinni. HK liðið kemur aftur í heimsókn á Ásvelli á miðvikudag í næstu viku.

Bikarmeistaratitill er eitt af aðalmarkmiðum Haukaliðsins fyrir veturinn. Strákarnir virtust staðráðnir í að taka skref í átt að því markmiði og mættu mjög einbeittur til leiks. Sigurbergur, sem hefur haft hægt um sig í síðustu leikjum, tók heldur betur af skarið og skoraði fimm af sex fyrstu mörkum liðsins. Framliggjandi vörn Hauka virtist koma HK-liðinu í opna skjöldu og dró allan mátt úr sóknarleik liðsins. Valdimar Þórsson var ekki skugginn af sjálfum sér og skoraði einungis tvö mörk sem telst til tíðinda á þeim bænum. Sverrir Hermansson var markahæstur gestanna með sex mörk en Sveinbjörn Pétursson var þeirra bestur með liðlega tuttugu skot varin, þar af þrjú eða fjögur vítakost.

Haukar komust í 8-1 um miðbik fyrri hálfleiks og höfðu fimm marka forystu í hálfleik. Munurinn varð aftur sjö mörk 17-10 snemma í seinni hálfleik og varð aldrei minni en fimm mörk í hálfleiknum. Sigurbergur Sveinsson var markahæstur með 8 mörk, en Björgvin og Elías Már skoruðu fimm mörk hvor. Birkir Ívar varði 18 skot í marki Hauka.

Næsti leikur Haukaliðsins er á miðvikudaginn, 17. febrúar, þegar HK kemur á ný í heimsókn en að morgni fimmtudags halda strákarnir til Spánar þar sem þeir mæta Naturhouse La Rioja í 16 liða úrslitum Evrópukeppni félagsliða.

Mbl.is fylgdist með gangi mála

Similar Posts

  • Golfmót Hauka frekari upplýsingar!

    Vinsamlegast athugið. Mótsgjaldið í Haukamótið 2026 er kr 8.000,00. Skráning í Haukamótið hefst kl. 12.00 þann 18. september og skráningu lýkur 24. september kl. 20.00. Þátttökugjald er kr. 8.000 og greiðist við skráningu. Haukafélagar, konur og karlar, hafa þátttökurétt í mótinu, en félagsaðild í golfklúbbi er skilyrði fyrir þátttöku. Nefndin

  • Haukamótið í golfi 2026.

    Haukamótið verður haldið á Hvaleyrarvelli, föstudaginn 25. september nk. Opnað verður fyrir skráningu í Golfboxinu kl. 12.00 þann 18. september og skráningu lýkur 24. september kl. 20.00. Þátttökugjald er kr. 8.000 og greiðist við skráningu. Haukafélagar konur og karlar hafa þátttökurétt í mótinu, en félagsaðild í golfklúbbi er skilyrði fyrir þátttöku. Keppt verður til verðlauna…

  • Andlátsfrétt.

    Laugardaginn 13. júní síðastliðinn barst sú harmafregn að einn af öflugustu stuðningsmönnum Hauka, Guðjón Ágúst Sigurðarson, væri látinn. Guðjón og Herborg, eiginkona  hans, hafa starfað sem sjálfboðaliðar hjá handknattleiksdeild Hauka  áratugum saman og stuðningur þeirra við starf deildarinnar er ómetanlegt.  Guðjón sat í stjórn   handknattleiksdeildar Hauka um margra ára skeið, allt til dánardags. Við fráfall…

  • Lokahóf Hauka – Verðlaunahafar og kveðjur eftir tímabilið 2025–2026

    Handknattleiksdeild Hauka hélt lokahóf sitt í vikunni þar sem leikmenn, þjálfarar og sjálfboðaliðar komu saman og fögnuðu flottu tímabili. Fjölmargir einstaklingar voru heiðraðir fyrir frammistöðu sína og framlag til félagsins – og jafnframt kvöddum við nokkra leikmenn sem halda nú á ný mið eftir verðugt og mikilvægt starf í rauðu treyjunni. Verðlaunahafar tímabilsins Meistaraflokkur kvenna…

  • Sumaríþróttaskóli Hauka 2026

    Sumaríþróttaskóli Hauka 2026   Íþróttaskóli Hauka verður starfræktur sumarið 2026 fyrir börn fædd 2014-2019, en skólinn hefur verið starfræktur frá árinu 2007. Íþróttaskólinn er sameiginlegt verkefni allra deilda félagsins þar sem lögð er áhersla á fjölbreytta hreyfingu, þjálfun og námskeið við allra hæfi. Gert er ráð fyrir að iðkendur fái að kynnast sem flestum íþróttagreinum…