Strákarnir mæta sigursælu liði Akureyrar norðan heiða

Búast má við þéttskipaðri Íþróttahöll fyrir norðanHaukastrákarnir fá ekki langa hvíld eftir maraþonleikinn gegn FH um síðustu helgi. Á fimmtudaginn fara þeir norður yfir heiðar og etja kappi við sterkt lið Akureyrar sem er í þriðja sæti N1 deildar karla með 11 stig, einu færra en lið Hauka. Akureyri hefur verið á góðri siglingu í deildinni og unnið fimm leiki í röð, nú síðast Valsmenn fyrir norðan 3. desember sl. Það er því ljóst að um hörkuleik verður að ræða en liðin skildu jöfn í annarri umferð deildarinnar að Ásvöllum 24-24 um miðjan október. Leikurinn hefst kl. 19:00 og verður sýndur beint á SportTV. Þetta er næstsíðasti leikur strákana fyrir jól en þeir mæta HK í Digranesi 14. desember nk.

Lið Akureyrar er eingöngu skipað norðanmönnum og er sterk blanda af ungum leikmönnum í fremstu röð á borð við Odd Grétarsson, sem er markahæstur norðanmanna með 46 mörk til þessa, og reynslumeiri mönnum á borð við Heimi Árnason, Jónatan Magnússon, Árna Þór Sigtryggson og Guðlaug Arnarson. Á hliðarlínunni stendur svo fyrrum leikmaður Hauka til margra ára, Akureyringurinn Rúnar Sigtryggsson. Akureyri hefur tekist að rífa handboltann upp á nýjan leik í bænum og búa til frábæra umgjörð um leiki liðsins í gömlu Íþróttahöllinni. Þar eru ætíð þéttskipaðir bekkir og góð stemmning vel áður en leikirnir hefjast. Haukastrákarnir fá því kjöraðstæður til að spila handbolta á fimmtudag líkt og í Kaplakrika á síðastliðinn sunnudag.

Frekari upplýsingar um lið Akureyrar má nálgast á heimasíðu liðsins.

Similar Posts

  • Golfmót Hauka frekari upplýsingar!

    Vinsamlegast athugið. Mótsgjaldið í Haukamótið 2026 er kr 8.000,00. Skráning í Haukamótið hefst kl. 12.00 þann 18. september og skráningu lýkur 24. september kl. 20.00. Þátttökugjald er kr. 8.000 og greiðist við skráningu. Haukafélagar, konur og karlar, hafa þátttökurétt í mótinu, en félagsaðild í golfklúbbi er skilyrði fyrir þátttöku. Nefndin

  • Haukamótið í golfi 2026.

    Haukamótið verður haldið á Hvaleyrarvelli, föstudaginn 25. september nk. Opnað verður fyrir skráningu í Golfboxinu kl. 12.00 þann 18. september og skráningu lýkur 24. september kl. 20.00. Þátttökugjald er kr. 8.000 og greiðist við skráningu. Haukafélagar konur og karlar hafa þátttökurétt í mótinu, en félagsaðild í golfklúbbi er skilyrði fyrir þátttöku. Keppt verður til verðlauna…

  • Andlátsfrétt.

    Laugardaginn 13. júní síðastliðinn barst sú harmafregn að einn af öflugustu stuðningsmönnum Hauka, Guðjón Ágúst Sigurðarson, væri látinn. Guðjón og Herborg, eiginkona  hans, hafa starfað sem sjálfboðaliðar hjá handknattleiksdeild Hauka  áratugum saman og stuðningur þeirra við starf deildarinnar er ómetanlegt.  Guðjón sat í stjórn   handknattleiksdeildar Hauka um margra ára skeið, allt til dánardags. Við fráfall…

  • Lokahóf Hauka – Verðlaunahafar og kveðjur eftir tímabilið 2025–2026

    Handknattleiksdeild Hauka hélt lokahóf sitt í vikunni þar sem leikmenn, þjálfarar og sjálfboðaliðar komu saman og fögnuðu flottu tímabili. Fjölmargir einstaklingar voru heiðraðir fyrir frammistöðu sína og framlag til félagsins – og jafnframt kvöddum við nokkra leikmenn sem halda nú á ný mið eftir verðugt og mikilvægt starf í rauðu treyjunni. Verðlaunahafar tímabilsins Meistaraflokkur kvenna…

  • Sumaríþróttaskóli Hauka 2026

    Sumaríþróttaskóli Hauka 2026   Íþróttaskóli Hauka verður starfræktur sumarið 2026 fyrir börn fædd 2014-2019, en skólinn hefur verið starfræktur frá árinu 2007. Íþróttaskólinn er sameiginlegt verkefni allra deilda félagsins þar sem lögð er áhersla á fjölbreytta hreyfingu, þjálfun og námskeið við allra hæfi. Gert er ráð fyrir að iðkendur fái að kynnast sem flestum íþróttagreinum…