Meistaraflokkur karla í handknattleik fær ekki langa hvíld eftir leiki helgarinnar í Evrópukeppninni. Í kvöld, þriðjudag, á liðið erfiðan „útileik“ fyrir höndum í 16 liða úrslitum Eimskipsbikarsins þegar það sækir gömlu brýnin í Haukum 2 heim að Ásvöllum. Leikurinn hefst kl. 19:30 og er frítt inn fyrir stuðningsmenn Hauka 2. Samkvæmt öruggum heimildum innan úr herbúðum Hauka 2 er búið að kortleggja leik Haukaliðsins vel fyrir átökin í kvöld á fjölmörgum videofundum undanfarna daga. Sömu heimildir herma að „bumburnar“ ætli að leggja upp með þá strategíu að verða fyrri til að skora 1-0 og halda þeirri forystu til leiksloka ellegar keyra hraðann up í leiknum til þess að nýta sér þreytu aðalliðsins eftir leiki helgarinnar. Mikil eftirvænting ríkir meðal fjölmargra stuðningsmanna Hauka 2 sem lofa glæsilegri umgjörð um þennan stórleik.
Fimm leikir hafa þegar farið fram í 16 liða úrslitum. FH sigraði Akureyri norðan heiða á sunnudag með einu marki 22-23, HK lagði ÍR í Breiðholtinu með fimm mörkum, Valur vann sex marka sigur á ÍR 2 og Víkingur sigraði Aftureldingu auk þess sem Gróttumenn, sem verða andstæðingar Hauka í sjónvarpsleik á sunnudag, tókst að leggja Stjörnuna að velli. Í kvöld mætast einnig Þróttur og Selfoss og á laugardag fer fram leikur ÍBV og Fram í Eyjum.