N1-deild kvenna hefst á þriðjudaginn

HaukarÁ þriðjudaginn næstkomandi fer fram heil umferð í 1.umferð N1-deildar kvenna 2009-2010. Heil og ekki heil umferð, í ár eru 9 lið í deildinni og mun því eitt lið sitja hjá í fyrstu umferðinni en það verður ekki Haukar. Haukar munu heimsækja Fylki í Árbænum á þriðjudaginn og hefst leikurinn 19:30.

 Breytingarnar á liðinu frá því í fyrra hafa verið litlar en Hekla Hannesdóttir hefur gengið í raðir 1.deildarliðs ÍBV. Einnig hefur Herdís Hallsdóttir flutt erlendis.

Tatjana Zukovska mun þó að öllum líkindum spila fleiri leiki í ár en í fyrra en hún gekk til liðs við Hauka fyrir síðasta tímabil. Hún meiddist hinsvegar illa á hné snemma í fyrra og missti þar af leiðindi af nánast öllu tímabilinu. 

Fylkisliðið er eins og áður ungt og efnilegt og má búast við hörkuleik í Árbænum á þriðjudaginn. Fylkisliðið sigraði til að mynda Hauka í Opna Reykjavíkurmótinu um síðustu helgi en Fylkisliðið lenti í 4.sæti á því móti. Við hvetjum Haukafólk til að fjölmenna á fyrsta leik vetrarins sem og alla aðra leiki í vetur.

Similar Posts

  • Golfmót Hauka frekari upplýsingar!

    Vinsamlegast athugið. Mótsgjaldið í Haukamótið 2026 er kr 8.000,00. Skráning í Haukamótið hefst kl. 12.00 þann 18. september og skráningu lýkur 24. september kl. 20.00. Þátttökugjald er kr. 8.000 og greiðist við skráningu. Haukafélagar, konur og karlar, hafa þátttökurétt í mótinu, en félagsaðild í golfklúbbi er skilyrði fyrir þátttöku. Nefndin

  • Haukamótið í golfi 2026.

    Haukamótið verður haldið á Hvaleyrarvelli, föstudaginn 25. september nk. Opnað verður fyrir skráningu í Golfboxinu kl. 12.00 þann 18. september og skráningu lýkur 24. september kl. 20.00. Þátttökugjald er kr. 8.000 og greiðist við skráningu. Haukafélagar konur og karlar hafa þátttökurétt í mótinu, en félagsaðild í golfklúbbi er skilyrði fyrir þátttöku. Keppt verður til verðlauna…

  • Andlátsfrétt.

    Laugardaginn 13. júní síðastliðinn barst sú harmafregn að einn af öflugustu stuðningsmönnum Hauka, Guðjón Ágúst Sigurðarson, væri látinn. Guðjón og Herborg, eiginkona  hans, hafa starfað sem sjálfboðaliðar hjá handknattleiksdeild Hauka  áratugum saman og stuðningur þeirra við starf deildarinnar er ómetanlegt.  Guðjón sat í stjórn   handknattleiksdeildar Hauka um margra ára skeið, allt til dánardags. Við fráfall…

  • Lokahóf Hauka – Verðlaunahafar og kveðjur eftir tímabilið 2025–2026

    Handknattleiksdeild Hauka hélt lokahóf sitt í vikunni þar sem leikmenn, þjálfarar og sjálfboðaliðar komu saman og fögnuðu flottu tímabili. Fjölmargir einstaklingar voru heiðraðir fyrir frammistöðu sína og framlag til félagsins – og jafnframt kvöddum við nokkra leikmenn sem halda nú á ný mið eftir verðugt og mikilvægt starf í rauðu treyjunni. Verðlaunahafar tímabilsins Meistaraflokkur kvenna…

  • Sumaríþróttaskóli Hauka 2026

    Sumaríþróttaskóli Hauka 2026   Íþróttaskóli Hauka verður starfræktur sumarið 2026 fyrir börn fædd 2014-2019, en skólinn hefur verið starfræktur frá árinu 2007. Íþróttaskólinn er sameiginlegt verkefni allra deilda félagsins þar sem lögð er áhersla á fjölbreytta hreyfingu, þjálfun og námskeið við allra hæfi. Gert er ráð fyrir að iðkendur fái að kynnast sem flestum íþróttagreinum…