Sigurbergur og Hanna best

Haukarfólk var mjög áberandi á lokahófi HSÍ sem fram fór á laugardagskvöld en mörg verðlaun kvöldsins komu í hlut okkar fólks.

Sigurbergur Sveinsson og Hanna Guðrún Stefánsdóttir voru valin bestu leikmenn tímabilsins.

Aron Kristjánsson, þjálfari Hauka, var valinn þjálfari ársins í karlaflokki en Díana Guðjónsdóttir hjá Haukum í kvennaflokki.

Valdimarsbikarinn hlaut Arnar Pétursson, Haukum.

Í liði ársins í N1-deildinni voru frá Haukum voru þau Kári Kristján Kristjánsson, Freyr Brynjarsson, Sigurbergur Sveinsson, Hanna Guðrún Stefánsdóttir og Ramune Pekarskyte en Ramune var valinn besti sóknarmaðurinn.

Háttvísisverðlaun HDSÍ fékk Hanna Guðrún.

N1-deild karla:
Besti markvörður: Ólafur Haukur Gíslason, Val
Besti sóknarmaður: Aron Pálmarsson, FH
Besti varnarmaður: Sverre Jakobsson, HK
Háttvísisverðlaun HDSÍ: Hafþór Einarsson, Akureyri
Markahæsti leikmaðurinn: Valdimar Stefánsson, HK (163 mörk)

N1-deild kvenna:
Besti markvörður: Florentina Stanciu, Stjörnunni
Besti sóknarmaður: Ramune Pekarskyte, Haukum
Besti varnarmaður: Hildigunnar Einarsdóttir, Val
Háttvísisverðlaun HDSÍ: Hanna Guðrún Stefánsdóttir, Haukum
Markahæsti leikmaðurinn: Hanna Guðrún Stefánsdóttir, Haukum (212 mörk)

Lið ársins í N1-deild karla:
Markvörður: Ólafur Haukur Gíslason, Val
Línumaður: Kári Kristján Kristjánsson, Haukum
Vinstra horn: Freyr Brynjarsson, Haukum
Vinstri skytta: Sigurbergur Sveinsson, Haukum
Hægra horn: Arnór Þór Gunnarsson, Val
Hægri skytta: Rúnar Kárason, Fram
Miðjumaður: Aron Pálmarsson, FH

Lið ársins í N1-deild kvenna:
Markvörður: Florentina Stanciu, Stjörnunni
Línumaður: Hildigunnur Einarsdóttir, Val
Vinstra horn: Kristín Clausen, Stjörnunni
Vinstri skytta: Ramune Pekarskyte, Haukum
Hægra horn: Hanna Guðrún Stefánsdóttir, Haukum
Hægri skytta: Stella Sigurðardóttir, Fram

Miðjumaður: Alina Petrache, Stjörnunni

Similar Posts

  • Golfmót Hauka frekari upplýsingar!

    Vinsamlegast athugið. Mótsgjaldið í Haukamótið 2026 er kr 8.000,00. Skráning í Haukamótið hefst kl. 12.00 þann 18. september og skráningu lýkur 24. september kl. 20.00. Þátttökugjald er kr. 8.000 og greiðist við skráningu. Haukafélagar, konur og karlar, hafa þátttökurétt í mótinu, en félagsaðild í golfklúbbi er skilyrði fyrir þátttöku. Nefndin

  • Haukamótið í golfi 2026.

    Haukamótið verður haldið á Hvaleyrarvelli, föstudaginn 25. september nk. Opnað verður fyrir skráningu í Golfboxinu kl. 12.00 þann 18. september og skráningu lýkur 24. september kl. 20.00. Þátttökugjald er kr. 8.000 og greiðist við skráningu. Haukafélagar konur og karlar hafa þátttökurétt í mótinu, en félagsaðild í golfklúbbi er skilyrði fyrir þátttöku. Keppt verður til verðlauna…

  • Andlátsfrétt.

    Laugardaginn 13. júní síðastliðinn barst sú harmafregn að einn af öflugustu stuðningsmönnum Hauka, Guðjón Ágúst Sigurðarson, væri látinn. Guðjón og Herborg, eiginkona  hans, hafa starfað sem sjálfboðaliðar hjá handknattleiksdeild Hauka  áratugum saman og stuðningur þeirra við starf deildarinnar er ómetanlegt.  Guðjón sat í stjórn   handknattleiksdeildar Hauka um margra ára skeið, allt til dánardags. Við fráfall…

  • Lokahóf Hauka – Verðlaunahafar og kveðjur eftir tímabilið 2025–2026

    Handknattleiksdeild Hauka hélt lokahóf sitt í vikunni þar sem leikmenn, þjálfarar og sjálfboðaliðar komu saman og fögnuðu flottu tímabili. Fjölmargir einstaklingar voru heiðraðir fyrir frammistöðu sína og framlag til félagsins – og jafnframt kvöddum við nokkra leikmenn sem halda nú á ný mið eftir verðugt og mikilvægt starf í rauðu treyjunni. Verðlaunahafar tímabilsins Meistaraflokkur kvenna…

  • Sumaríþróttaskóli Hauka 2026

    Sumaríþróttaskóli Hauka 2026   Íþróttaskóli Hauka verður starfræktur sumarið 2026 fyrir börn fædd 2014-2019, en skólinn hefur verið starfræktur frá árinu 2007. Íþróttaskólinn er sameiginlegt verkefni allra deilda félagsins þar sem lögð er áhersla á fjölbreytta hreyfingu, þjálfun og námskeið við allra hæfi. Gert er ráð fyrir að iðkendur fái að kynnast sem flestum íþróttagreinum…