Freyr og Ramune best í umferðum 8 – 14

Ramune var valin besti leikmaður umferða 8 - 14 í N1 deild kvennaÍ hádeginu í dag var tilkynnt hvaða leikmenn eru bestu leikmenn umferða 8 til 14 í N1 deildum karla og kvenna auk þess sem lið umferðanna voru tilkynnt. Haukamenn fengu flest verðlaun allra félaga en samtals urðu verðlaunin níu til Haukamanna, Stjarnan og Valur fengu þrenn verðlaun, FH og Fram tvenn og HK ein verðlaun. Bestu leikmenn umferðanna bæði í karla og kvenna flokki eru í liðum Hauka en það eru þau Ramune Pekarskyte og Freyr Brynjarsson. Aron Kristjánsson var einnig valinn þjálfari umferðanna.

Í karlaflokki fengu Haukamenn fimm verðlaun en auk þess að Freyr og Aron voru valdir bestir þá voru Freyr, Birkir Ívar Guðmundsson og Sigurbergur Sveinsson í liði umferðanna. Aðrir í liði umferðanna eru þeir Arnór Gunnarsson, Val, Framararnir Rúnar Kárason og Haraldur Þorvarðarson auk Valdimars Þórssonar, HK. Bestu dómarar umferðanna voru þeir Anton Gylfi Pálsson og Hlynur Leifsson.

Í kvennaflokki voru verðlaun Haukakvenna fjögur. Ramune var eins og áður segir valin best auk þess sem hún var í liði umferðanna. Aðrar Haukakonur í liði umferðanna eru þær Nína Björk Arnfinnsdóttir og Hanna Guðrún Stefánsdóttir. Auk Haukakvennana voru Stjörnukonurnar Florentia Staciu og Alina Petrache, Valskonan Dagný Skúladóttir og FH-ingurinn Ragnhildur Rósa Guðmundsdóttir í liði ársins. Besti þjálfarinn var kosinn Atli Hilmarsson, þjálfari Stjörnunnar og besta umgjörðin var hjá Valsmönnum. 

Similar Posts

  • Golfmót Hauka frekari upplýsingar!

    Vinsamlegast athugið. Mótsgjaldið í Haukamótið 2026 er kr 8.000,00. Skráning í Haukamótið hefst kl. 12.00 þann 18. september og skráningu lýkur 24. september kl. 20.00. Þátttökugjald er kr. 8.000 og greiðist við skráningu. Haukafélagar, konur og karlar, hafa þátttökurétt í mótinu, en félagsaðild í golfklúbbi er skilyrði fyrir þátttöku. Nefndin

  • Haukamótið í golfi 2026.

    Haukamótið verður haldið á Hvaleyrarvelli, föstudaginn 25. september nk. Opnað verður fyrir skráningu í Golfboxinu kl. 12.00 þann 18. september og skráningu lýkur 24. september kl. 20.00. Þátttökugjald er kr. 8.000 og greiðist við skráningu. Haukafélagar konur og karlar hafa þátttökurétt í mótinu, en félagsaðild í golfklúbbi er skilyrði fyrir þátttöku. Keppt verður til verðlauna…

  • Andlátsfrétt.

    Laugardaginn 13. júní síðastliðinn barst sú harmafregn að einn af öflugustu stuðningsmönnum Hauka, Guðjón Ágúst Sigurðarson, væri látinn. Guðjón og Herborg, eiginkona  hans, hafa starfað sem sjálfboðaliðar hjá handknattleiksdeild Hauka  áratugum saman og stuðningur þeirra við starf deildarinnar er ómetanlegt.  Guðjón sat í stjórn   handknattleiksdeildar Hauka um margra ára skeið, allt til dánardags. Við fráfall…

  • Lokahóf Hauka – Verðlaunahafar og kveðjur eftir tímabilið 2025–2026

    Handknattleiksdeild Hauka hélt lokahóf sitt í vikunni þar sem leikmenn, þjálfarar og sjálfboðaliðar komu saman og fögnuðu flottu tímabili. Fjölmargir einstaklingar voru heiðraðir fyrir frammistöðu sína og framlag til félagsins – og jafnframt kvöddum við nokkra leikmenn sem halda nú á ný mið eftir verðugt og mikilvægt starf í rauðu treyjunni. Verðlaunahafar tímabilsins Meistaraflokkur kvenna…

  • Sumaríþróttaskóli Hauka 2026

    Sumaríþróttaskóli Hauka 2026   Íþróttaskóli Hauka verður starfræktur sumarið 2026 fyrir börn fædd 2014-2019, en skólinn hefur verið starfræktur frá árinu 2007. Íþróttaskólinn er sameiginlegt verkefni allra deilda félagsins þar sem lögð er áhersla á fjölbreytta hreyfingu, þjálfun og námskeið við allra hæfi. Gert er ráð fyrir að iðkendur fái að kynnast sem flestum íþróttagreinum…