Í dag sóttu Haukastelpur Fylki heim í Árbæinn. Um var að ræða leik efsta og neðsta liðs deildarinnar og því mátti búast við sigri Haukastelpna. Til að byrja með virtust þær hins vegar að lenda í vandræðum en þegar um fyrri hálfleikur var um það bil hálfnaður stungu þær af og sigruðu að lokum með níu mörkum, 39 – 30.
Fylkisstelpur voru mjög sprækar í leiknum og vitust ætla að stríða Haukastelpum til að byrja með. Haukar skoruðu fyrstu tvö mörk leiksins en Fylkir náði að komast yfir 3-2 og leiddu leikinn þar til í stöðunni 7-7. Þá lifnaði yfir Haukastelpum og þær voru fljótt komnar með gott forskot. Í hálfleik höfðu Haukastelpur þriggja marka forskot, 17 – 14. Í síðari hálfleik stungu þær hins vegar af, skoruðu hvert markið á fætur öðru úr hraðarupphlaupi og Nína Kristín var í essinu sínu og skoraði hvert markið á fætur öðru með þrumuskoti fyrir utan.
Með sigrinum juku Haukastelpur forskotið á toppi deildarinnar í 6 stig þar sem nágrannar okkar í FH sigruðu lið Vals í Vodafone höllinni. Haukar eru í efsta sæti deildarinnar með 20 stig en Stjarnan og Valur eru jöfn í öðru og þriðja sæti deildarinnar með 14 stig.
Nú er komið jólafrí í N1 deild kvenna en milli jóla og nýárs verður leikið í deildarbikarkeppni HSÍ. Þar leika Haukar, Stjarnan, Valur og Fram. Undanúrslit fara fram laugardaginn 27. desember og leika Haukastelpur klukkan 12:00 gegn Fram og Stjarnan og Valur mætast klukkan 14:00. Leikirnir fara fram í Laugardalshöll. Úrlitaleikur mótsins fer svo fram klukkan 14:00 sunnudaginn 28. desember.