Haukar unnu Víkinga í kvöld í N1-deild karla með 25 mörkum gegn 22 í Víkinni. Með sigrinum eru Haukar komnir í 2.-5. sæti með 12 stig ásamt FH, Akureyri og Fram. Valsmenn eru á toppnum með 15 stig.
Sigur Hauka í kvöld var allt annað en öruggur þrátt fyrir að liðið væri að mæta sigurlausum Víkingum sem sitja á botni N1-deildarinnar.
Að loknum baráttuleik höfðu Haukar mikilvægan sigur og liðið komið á sigurbraut. Aron Kristjánsson róteraði mikið á liðinu í leiknum og leyfði ungum leikmönnum að spila. Sóknarleikurinn var ekki upp á marga fiska og erfiðlega gekk að komast framhjá vörn Víkingana undir lok leiks og voru Haukar oft á tíðum stál heppnir að Víkingar kæmust ekki nær þeim en Birkir Ívar varði oft á tíðum í opnum færum sem og að Víkingar voru klaufar í sókninni.
Markahæstur í dag var Elías Már Halldórsson með sjö mörk, Einar Örn Jónsson skoraði fjögur og þar af eitt úr vítakasi. Kári Kristján Kristjánsson setti þrjú sem og Gísli Jón Þórisson. Gunnar Berg Viktorsson, Stefán Rafn Sigurmansson og Andri Stefan settu tvö. Svo skoruðu þeir Freyr Brynjarsson og Arnar Jón Agnarsson eitt mark hvor.
Birkir Ívar Guðmundsson varði 18 skot.
Sigurbergur Sveinsson var í leikbanni í kvöld. Auk hans þá voru þeir Arnar Pétursson og Gísli Guðmundsson ekki með í kvöld.
Fylgst var með leiknum á mbl.is.