Hvað segja fjölmiðlamennirnir ? FH – Haukar á morgun

HaukarEnn höldum við áfram að fjalla um Hafnarfjarðarslaginn sem fram fer á morgun, miðvikudag. Við erum að tala um leik FH og Hauka í N1-deild karla sem fer fram á morgun í Kaplakrika klukkan 19:30.

Í dag munum við fá nokkra blaðamenn landsins til að tjá sig um leikinn en oftar en ekki hafa þeir mikið að segja. 

Við fengum þá, Ívar Benediktsson blaðamann á Morgunblaðinu, Tómas Þór Þórðarsson blaðamann á DV, Henry Brigi Gunnarsson blaðamann á Fréttablaðinu og Elvar Geir Magnússon blaðamann á Vísi til að tjá sig um komandi leik.

Ívar Benediktsson hafi þetta að segja; „FH-liðið hefur komið sem ferskur blær inn í N1 deildina í haust og í vetur með stórum hópi ungra og afar efnilegra handknattleiksmanna. Haukarnir hafa á sama tíma verið afar brottgengir. Þeir hafa leikið fína leika bæði í deildinni og í meistaradeild Evrópu en á milli dottið niður úr öllu valdi í fáeinum leikjum  N1 deildarinnar. Alveg er ljóst að bæði lið munu leggja allt í sölurnar í þessu fyrsta alvöru uppgjöri Hafnarfjarðarliðanna um nokkurra ára skeið. Vonandi verður fullt hús í Kaplakrika á leiknum þannig að það skapist hin rétta stemning eins menn muna frá uppgjörum þessara liða í fyrri tíð, ekki hvað síst þegar íþróttahúsið við Strandgötu var þéttpakkað.
FH og Haukar áttust við í Afmælismóti Hafnarfjarðarbæjar í haust og þá höfðu Haukar betur. Síðan þá hefur talsvert vatn runnið til sjávar og því ætla ég að veðja á að stráklingarnir hans Elvars merji nauman sigur að þessu sinni í leik.
“

Henry Birgir Gunnarsson; „Ég á von á spennandi og jöfnum leik. Haukarnir hafa verið að gefa eftir í deildinni síðustu misserin á meðan FH-liðið hefur verið að gera fína hluti og geislar af sjálfstrausti. Haukarnir munu þó koma til baka. Ég verð illa svekktur ef þetta verður ekki alvöru grannaslagur þar sem hart verður tekist á, vonandi í stúkunni líka. Ætla að spá því að leiknum lykti með jafntefli, 23-23.”

Tómas Þór Þórðarsson; „Þetta verður frábær leikur og tími til kominn að „alvöru“ Hafnafjarðarslagur sé á dagskránni. Það er gjörsamlega allt sem mælir með þessum leik. FH-ingar hafa komið manna mest á óvart og koma inn í leikinn á miðvikudaginn sem topplið  deildarinnar. Á sama tíma sitja Íslandsmeistarar Haukar í 6. sæti þó stigamunurinn sé ekki mikill. Tvö stig.
Í FH-liðinu eru uppaldir strákar sem hafa alist upp við að hata Hauka og ætla sér ekkert nema sigur. Hjá Haukum er Aron Kristjánsson við stjórnvölin sem kannast vel við Hafnarfjarðarslaginn og leggur eflaust mikið upp úr því að vinna þennan leik. Þá má ekki gleyma heimalingnum í Haukaliðinu, Sigurbergi Sveinssyni, sem mun ekki vilja láta Aroni Pálmarssyni eftir fyrirsagnirnar.
Persónulega býst ég við frábærum leik og stemningin í húsinu mun eflaust minna á gamla tíma. Þetta er leikur sem enginn handboltaunnandi má láta framhjá sér fara. Það er ekkert flóknara.“

Elvar Geir Magnússon; „Þetta verður klárlega hörkuleikur, á því liggur enginn vafi. Hið unga lið FH hefur verið mikið í umræðunni enda einstaklega spennandi og skemmtilegt lið en þeir fá engin vettlingatök frá Haukum. Það er mjög erfitt að spá fyrir um úrslitin og ég held að spennustigið í húsinu verði hátt alveg þar til lokaflautan gellur. En ég ætla þó að spá því að Haukar muni keyra með tvö stig í hinn hluta Hafnarfjarðar.“

Sjá einnig:

Hvað segir Einar Örn Jónsson?

Aðeins einn FH sigur á tíu árum

Á morgun munu svo leikmenn meistaraflokks Hauka láta í sér heyra hér á síðunni það verður að vanda spennandi lestursefni. Við munum svo láta í okkur heyra á morgun, klukkan 19:30 í Kaplakrika.

Similar Posts

  • Golfmót Hauka frekari upplýsingar!

    Vinsamlegast athugið. Mótsgjaldið í Haukamótið 2026 er kr 8.000,00. Skráning í Haukamótið hefst kl. 12.00 þann 18. september og skráningu lýkur 24. september kl. 20.00. Þátttökugjald er kr. 8.000 og greiðist við skráningu. Haukafélagar, konur og karlar, hafa þátttökurétt í mótinu, en félagsaðild í golfklúbbi er skilyrði fyrir þátttöku. Nefndin

  • Haukamótið í golfi 2026.

    Haukamótið verður haldið á Hvaleyrarvelli, föstudaginn 25. september nk. Opnað verður fyrir skráningu í Golfboxinu kl. 12.00 þann 18. september og skráningu lýkur 24. september kl. 20.00. Þátttökugjald er kr. 8.000 og greiðist við skráningu. Haukafélagar konur og karlar hafa þátttökurétt í mótinu, en félagsaðild í golfklúbbi er skilyrði fyrir þátttöku. Keppt verður til verðlauna…

  • Andlátsfrétt.

    Laugardaginn 13. júní síðastliðinn barst sú harmafregn að einn af öflugustu stuðningsmönnum Hauka, Guðjón Ágúst Sigurðarson, væri látinn. Guðjón og Herborg, eiginkona  hans, hafa starfað sem sjálfboðaliðar hjá handknattleiksdeild Hauka  áratugum saman og stuðningur þeirra við starf deildarinnar er ómetanlegt.  Guðjón sat í stjórn   handknattleiksdeildar Hauka um margra ára skeið, allt til dánardags. Við fráfall…

  • Lokahóf Hauka – Verðlaunahafar og kveðjur eftir tímabilið 2025–2026

    Handknattleiksdeild Hauka hélt lokahóf sitt í vikunni þar sem leikmenn, þjálfarar og sjálfboðaliðar komu saman og fögnuðu flottu tímabili. Fjölmargir einstaklingar voru heiðraðir fyrir frammistöðu sína og framlag til félagsins – og jafnframt kvöddum við nokkra leikmenn sem halda nú á ný mið eftir verðugt og mikilvægt starf í rauðu treyjunni. Verðlaunahafar tímabilsins Meistaraflokkur kvenna…

  • Sumaríþróttaskóli Hauka 2026

    Sumaríþróttaskóli Hauka 2026   Íþróttaskóli Hauka verður starfræktur sumarið 2026 fyrir börn fædd 2014-2019, en skólinn hefur verið starfræktur frá árinu 2007. Íþróttaskólinn er sameiginlegt verkefni allra deilda félagsins þar sem lögð er áhersla á fjölbreytta hreyfingu, þjálfun og námskeið við allra hæfi. Gert er ráð fyrir að iðkendur fái að kynnast sem flestum íþróttagreinum…