Styttist í leik númer tvö í Meistaradeildinni

Meistaradeild Evrópu 2008-2009Nú eru aðeins tveir dagar í að Haukar í meistaraflokki karla í handbolta leika sinn annan leik í Meistaradeild Evrópu. Þeir sigruðu á sunnudaginn lið ZTR Zaporozhye frá Úkraníu með rosalegri baráttu á síðustu mínútunum síðastliðinn sunnudag og nú er komið að stór liði Flensburg. Leikurinn fer fram í Flensburg á fimmtudaginn og verður í beinni útsendingu á Eurosport 2.

Strákarnir eru með tvö stig fyrir leikinn gegn Flensburg en Flensburg er án stiga. Flensburg tapaði fyrir liði Vezprém á heimavelli sigurvegaranna á sama tíma og okkar strákar sigruðu sinn leik á sunnudaginn. En Flensburg eru nú ekki með neitt slor lið. Þeir eru eitt af stærstu liðum þýsku deildarinnar sem er ein sú sterkasta í heimi. Það má því segja að Haukastrákarnir séu að mæta einu af sterkustu liðum Evrópu.

 

Leikurinn hefst klukkan 20:00 að staðartíma, 18:00 að íslenskum tíma, á fimmtudaginn og verður að sjálfsögðu fylgst með honum hér á heimasíðunni þar sem við munum birta stöðuna reglulega.

Í vikunni munum við fjalla um leikinn hér á síðunni og meðal annars fjalla um lið Flensburgar. 

 

Similar Posts

  • Golfmót Hauka frekari upplýsingar!

    Vinsamlegast athugið. Mótsgjaldið í Haukamótið 2026 er kr 8.000,00. Skráning í Haukamótið hefst kl. 12.00 þann 18. september og skráningu lýkur 24. september kl. 20.00. Þátttökugjald er kr. 8.000 og greiðist við skráningu. Haukafélagar, konur og karlar, hafa þátttökurétt í mótinu, en félagsaðild í golfklúbbi er skilyrði fyrir þátttöku. Nefndin

  • Haukamótið í golfi 2026.

    Haukamótið verður haldið á Hvaleyrarvelli, föstudaginn 25. september nk. Opnað verður fyrir skráningu í Golfboxinu kl. 12.00 þann 18. september og skráningu lýkur 24. september kl. 20.00. Þátttökugjald er kr. 8.000 og greiðist við skráningu. Haukafélagar konur og karlar hafa þátttökurétt í mótinu, en félagsaðild í golfklúbbi er skilyrði fyrir þátttöku. Keppt verður til verðlauna…

  • Andlátsfrétt.

    Laugardaginn 13. júní síðastliðinn barst sú harmafregn að einn af öflugustu stuðningsmönnum Hauka, Guðjón Ágúst Sigurðarson, væri látinn. Guðjón og Herborg, eiginkona  hans, hafa starfað sem sjálfboðaliðar hjá handknattleiksdeild Hauka  áratugum saman og stuðningur þeirra við starf deildarinnar er ómetanlegt.  Guðjón sat í stjórn   handknattleiksdeildar Hauka um margra ára skeið, allt til dánardags. Við fráfall…

  • Lokahóf Hauka – Verðlaunahafar og kveðjur eftir tímabilið 2025–2026

    Handknattleiksdeild Hauka hélt lokahóf sitt í vikunni þar sem leikmenn, þjálfarar og sjálfboðaliðar komu saman og fögnuðu flottu tímabili. Fjölmargir einstaklingar voru heiðraðir fyrir frammistöðu sína og framlag til félagsins – og jafnframt kvöddum við nokkra leikmenn sem halda nú á ný mið eftir verðugt og mikilvægt starf í rauðu treyjunni. Verðlaunahafar tímabilsins Meistaraflokkur kvenna…

  • Sumaríþróttaskóli Hauka 2026

    Sumaríþróttaskóli Hauka 2026   Íþróttaskóli Hauka verður starfræktur sumarið 2026 fyrir börn fædd 2014-2019, en skólinn hefur verið starfræktur frá árinu 2007. Íþróttaskólinn er sameiginlegt verkefni allra deilda félagsins þar sem lögð er áhersla á fjölbreytta hreyfingu, þjálfun og námskeið við allra hæfi. Gert er ráð fyrir að iðkendur fái að kynnast sem flestum íþróttagreinum…