Hverjir eru þessir, ZTR Zaporozhye ?

Meistaradeild EvrópuEins og áður hefur komið fram leikur meistaraflokkur karla sinn fyrsta leik í Meistaradeild Evrópu á sunnudaginn þegar liðið tekur á móti ZTR Zaporozhye frá Úkraníu. Liðið hefur tekið tíu sinnum þátt forkeppni og/eða riðlakeppni Meistaradeildarinnar og fimm sinnum í öðrum Evrópukeppnum. Liðið hefur tekið þátt í Evrópukeppni á hverju ári frá árinu 1993.

Við höldum áfram að fjalla um leikinn á sunnudaginn en á hverjum degi fram að leik munum við birta frétt um Meistaradeild Evrópu. Við munum birta spennandi tilboð fyrir Hauka í horni í fyrramálið. 

Liðið ZTR Zaporozhye kemur frá Zaporizhia, sem er 790.000 manna borg í suðurhluta Úkraníu. Til gamans má geta að íbúa borgarinnar eru rúmlega tvisvar og hálfu sinni fleiri en allir Íslendingar. 

Meðalaldur liðsins er rúmlega 25,5 ár. Elsti leikmaður liðsins er 37 ára og er úkraínski hægri skyttan Andriy Nataluyk. Næstelsti leikmaður liðsins er rúmanski markmaðurinn, Zoltan Majeri en hann er 35 ára. Zoltan er eini erlendi leikmaður liðsins. Allir aðrir leikmenn liðsins er undir þrítugu. Yngsti leikmaður liðsins er hins vegar aðeins tvítugur, en það er einnig hægri skytta og heitir hann Artem Mogylka.

Liðið hefur tekið þátt í Evrópukeppnum samtals fimmtán sinnum. Oftast hefur liðið leikið í forkeppni og/eða riðlakeppni Meistaradeildarinnar eða samtals tíu sinnum. Fimm sinnum hefur liðið leikið í öðrum keppnum og í fimm önnur skipti hefur liðið farið í aðra Evrópukeppni  eftir að hafa leikið í Meistaradeildinni.

Liðið hefur leikið fjórum sinnum leikið í undanúrslitum Evrópukeppna, fyrst árið 1995 í Evrópukeppni félagsliða, árin 1999 og 2000 lék liðið í undanúrslitum Meistaradeildarinnar og á síðasta keppnistímabili lék liðið í undanúrslitum Evrópukeppni bikarhafa.  

Það er því greinilega að liðið sem mætir á Ásvelli á sunnudaginn er félag með  hefð úr Evrópukeppni.

En eins og áður segir, leikurinn hefst klukkan 16.00 á sunnudaginn og hvetjum við fólk til að fjölmenna á Ásvelli þar sem Haukastrákunum veitir ekki af góðum stuðningi í erfiðum Evrópuleikjum sem framundan eru. Þetta er aðeins fyrsti leikurinn af sex erfiðum leikjum og að sjálfsögðu viljum við sýna erlendu liðunum að stuðningsmenn á Íslandi er frábærir.

Við munum koma með fleiri fréttir af Evrópukeppninni næstu daga. Í fyrramálið mun koma á heimasíðuna spennandi tilboð til félaga í Haukum í horni.  

Similar Posts

  • Golfmót Hauka frekari upplýsingar!

    Vinsamlegast athugið. Mótsgjaldið í Haukamótið 2026 er kr 8.000,00. Skráning í Haukamótið hefst kl. 12.00 þann 18. september og skráningu lýkur 24. september kl. 20.00. Þátttökugjald er kr. 8.000 og greiðist við skráningu. Haukafélagar, konur og karlar, hafa þátttökurétt í mótinu, en félagsaðild í golfklúbbi er skilyrði fyrir þátttöku. Nefndin

  • Haukamótið í golfi 2026.

    Haukamótið verður haldið á Hvaleyrarvelli, föstudaginn 25. september nk. Opnað verður fyrir skráningu í Golfboxinu kl. 12.00 þann 18. september og skráningu lýkur 24. september kl. 20.00. Þátttökugjald er kr. 8.000 og greiðist við skráningu. Haukafélagar konur og karlar hafa þátttökurétt í mótinu, en félagsaðild í golfklúbbi er skilyrði fyrir þátttöku. Keppt verður til verðlauna…

  • Andlátsfrétt.

    Laugardaginn 13. júní síðastliðinn barst sú harmafregn að einn af öflugustu stuðningsmönnum Hauka, Guðjón Ágúst Sigurðarson, væri látinn. Guðjón og Herborg, eiginkona  hans, hafa starfað sem sjálfboðaliðar hjá handknattleiksdeild Hauka  áratugum saman og stuðningur þeirra við starf deildarinnar er ómetanlegt.  Guðjón sat í stjórn   handknattleiksdeildar Hauka um margra ára skeið, allt til dánardags. Við fráfall…

  • Lokahóf Hauka – Verðlaunahafar og kveðjur eftir tímabilið 2025–2026

    Handknattleiksdeild Hauka hélt lokahóf sitt í vikunni þar sem leikmenn, þjálfarar og sjálfboðaliðar komu saman og fögnuðu flottu tímabili. Fjölmargir einstaklingar voru heiðraðir fyrir frammistöðu sína og framlag til félagsins – og jafnframt kvöddum við nokkra leikmenn sem halda nú á ný mið eftir verðugt og mikilvægt starf í rauðu treyjunni. Verðlaunahafar tímabilsins Meistaraflokkur kvenna…

  • Sumaríþróttaskóli Hauka 2026

    Sumaríþróttaskóli Hauka 2026   Íþróttaskóli Hauka verður starfræktur sumarið 2026 fyrir börn fædd 2014-2019, en skólinn hefur verið starfræktur frá árinu 2007. Íþróttaskólinn er sameiginlegt verkefni allra deilda félagsins þar sem lögð er áhersla á fjölbreytta hreyfingu, þjálfun og námskeið við allra hæfi. Gert er ráð fyrir að iðkendur fái að kynnast sem flestum íþróttagreinum…