6 stiga forskot

Í kvöld spiluðu strákarnir gegn HK í toppslag N1 deildarinnar.

Jafnræði var með liðunum í fyrri hálfleik og var staðan í hálfleik 14-13 okkar strákum í vil í hálfleik. Í byrjun seinni hálfleiks var leikurinn áfram jafn en um hann miðjan skoruðu okkar strákar 6 mörk gegn aðeins einu og komust í stöðuna 25-19. HK náði að minnka muninn niður í eitt mark en af hörku náðu okkar menn að verja sigurinn sem að lokum vannst 30-26.

Tveir leikmenn skoruðu 6 mörk fyrir Hauka í kvöld en svo skemmtilega vill til að það var annars vegar næst yngsti leikmaður liðsins og hins vegar elsti leikmaður liðsins. Þetta eru að sjálfsögðu þeir Sigurbergur Sveinsson og Halldór Ingólfsson.

Hjá HK var Ólafur Bjarki Ragnarsson markahæstur með 8 mörk.

Nú er komið jólafrí hjá strákunum í N1 deildinni. Hins vegar leika þeir í deildarbikarkeppninni milli jóla og nýárs en þar mæta þeir liðinu sem er í 4. sæti deildarinnar föstudaginn 28. desember í Laugardalshöll klukkan 18:30. Sigurliðið úr þeim leik leikur svo til úrslita á laugardeginum klukkan 16:00.
Eins og staðan er núna verður mótherji strákanna í undanúrslitum lið Stjörnunnar en Valur er með jafnmörg stig og Stjarnan í 5. sæti. Stjarnan leikur gegn Aftureldingu á morgun, laugardag, og Valur leikur gegn Fram á sunnudag. Stjarnan á svo eftir að leika gegn Fram og Valur gegn HK 19. desember. Það verður því eitt af þessum fjórum liðum sem við mætum: Stjarnan, Valur, Fram eða HK.

Næsti leikur strákanna í deildinni verður svo landsleikjafrí 1. febrúar á næsta ári.

Similar Posts

  • Golfmót Hauka frekari upplýsingar!

    Vinsamlegast athugið. Mótsgjaldið í Haukamótið 2026 er kr 8.000,00. Skráning í Haukamótið hefst kl. 12.00 þann 18. september og skráningu lýkur 24. september kl. 20.00. Þátttökugjald er kr. 8.000 og greiðist við skráningu. Haukafélagar, konur og karlar, hafa þátttökurétt í mótinu, en félagsaðild í golfklúbbi er skilyrði fyrir þátttöku. Nefndin

  • Haukamótið í golfi 2026.

    Haukamótið verður haldið á Hvaleyrarvelli, föstudaginn 25. september nk. Opnað verður fyrir skráningu í Golfboxinu kl. 12.00 þann 18. september og skráningu lýkur 24. september kl. 20.00. Þátttökugjald er kr. 8.000 og greiðist við skráningu. Haukafélagar konur og karlar hafa þátttökurétt í mótinu, en félagsaðild í golfklúbbi er skilyrði fyrir þátttöku. Keppt verður til verðlauna…

  • Andlátsfrétt.

    Laugardaginn 13. júní síðastliðinn barst sú harmafregn að einn af öflugustu stuðningsmönnum Hauka, Guðjón Ágúst Sigurðarson, væri látinn. Guðjón og Herborg, eiginkona  hans, hafa starfað sem sjálfboðaliðar hjá handknattleiksdeild Hauka  áratugum saman og stuðningur þeirra við starf deildarinnar er ómetanlegt.  Guðjón sat í stjórn   handknattleiksdeildar Hauka um margra ára skeið, allt til dánardags. Við fráfall…

  • Lokahóf Hauka – Verðlaunahafar og kveðjur eftir tímabilið 2025–2026

    Handknattleiksdeild Hauka hélt lokahóf sitt í vikunni þar sem leikmenn, þjálfarar og sjálfboðaliðar komu saman og fögnuðu flottu tímabili. Fjölmargir einstaklingar voru heiðraðir fyrir frammistöðu sína og framlag til félagsins – og jafnframt kvöddum við nokkra leikmenn sem halda nú á ný mið eftir verðugt og mikilvægt starf í rauðu treyjunni. Verðlaunahafar tímabilsins Meistaraflokkur kvenna…

  • Sumaríþróttaskóli Hauka 2026

    Sumaríþróttaskóli Hauka 2026   Íþróttaskóli Hauka verður starfræktur sumarið 2026 fyrir börn fædd 2014-2019, en skólinn hefur verið starfræktur frá árinu 2007. Íþróttaskólinn er sameiginlegt verkefni allra deilda félagsins þar sem lögð er áhersla á fjölbreytta hreyfingu, þjálfun og námskeið við allra hæfi. Gert er ráð fyrir að iðkendur fái að kynnast sem flestum íþróttagreinum…