Vorhreingerning og stórleikur í Mjólkurbikar karla á Ásvöllum á laugardaginn!

Það verður mikið um að vera á Ásvöllum laugardaginn 23. apríl þar sem sjálfboðaliðar og forráðamenn iðkenda ætla að hefja daginn á vorhreingerningu. Í kjölfarið verður boðið á stórleik Hauka og KÁ, Knattspyrnufélagsins Ásvöllum, í Mjólkurbikar karla. Vorhreingerningin hefst kl. 09.30. Hvetjum við alla Haukara til að skrá sig til að hjálpa okkur að taka […]

Úrslit Subway deildarinnar hefjast í kvöld

Haukar taka á móti Njarðvík í kvöld í úrslitum Subway deildar kvenna en leikurinn hefst kl. 19:15. Það lið sem fyrr vinnur þrjá leiki verður Íslandsmeistari. Í undanúrslitum lögðu Haukar ríkjandi meistara Vals 3-0 í hörku seríu og á meðan hafði Njarðvík betur gegn deildarmeisturum Fjölnis 3-1. Sem fyrr segir hefst leikurinn kl. 19:15 og […]

Gleðilega páskahátíð!

Kæra Haukafólk. Það var líflegt í dag á Ásvöllum, þegar íslenska landsliðið í handbolta mætti því austurríska og vann með sigri sínum rétt til þátttöku í heimsmeistaramótinu sem haldið verður í janúar á næsta ári. Stuðningsmenn íslenska landsliðsins fylltu íþróttasalinn með kraftmiklum stuðningi sínum og það var ekki laust við að maður fangaði von og […]

12. apríl, afmælisdagur Hauka

12. apríl, afmælisdagur Knattspyrnufélagsins Hauka. Hönnun knatthússins lokið og verkið boðið út í lok þessa mánaðar. Framkvæmdir við nýtt knatthús hefjast í lok sumars. Eins og venja er á afmælisdegi félagsins var öllum Haukafélögum og velunnurum félagsins boðið að þiggja kaffiveitingar og gleðjast yfir löngu og farsælu starfi félagins, en Knattspyrnufélagið Haukar var stofnað árið […]

Fögnum afmæli félagsins á morgun, 12. apríl, í samkomusal félagsins á milli kl. 17:00 og 18:00.

Enn einn merkisdagur í sögu okkar góða félags rennur upp á morgun, þriðjudaginn 12. apríl, en þá fögnum við 91 árs afmæli félagsins, en Knattspyrnufélagið Haukar var stofnað árið 1931. Af því tilefni er öllum Haukafélögum og velunnurum félagsins boðið að þiggja kaffiveitingar í samkomusalnum á milli kl. 17:00 og 18:00. Við getum glaðst á þessum […]

Aðalfundur kkd. Hauka

Aðalfundur körfuknattleiksdeildar Hauka verður haldinn þriðjudaginn 12. apríl kl. 20:00 í forsal íþróttamiðstöðvarinnar á Ásvöllum. Dagskrá samkvæmt lögum félagsins Stjórn kkd. Hauka

Úrslitakeppni Subway deildarinnar

Nú er úrslitakeppnin í Subway deildinni farin í gang og okkar konur mæta Val í undanúrslitum. Fyrsti leikurinn fór fram í gærkvöldi og unnum við þar hörku sigur 58-61 og tókum þ.a.l. forskot í einvíginu. Næsti leikur er í Ólafssal á fimmtudag kl. 18:15. Dagskrá undanúrslitanna: 4.4.22 Valur-Haukar kl. 20:15 7.4.22 Haukar-Valur kl. 18:15 10.4.22 […]