Okkar menn

Markaðsstofa Hafnarfjarðar veitti  nýlega viðurkenningar til aðila sem lyft hafa bæjarandanum og bætt hafnfirskt samfélag. Þeirra á meðal var formaður Handknattleiksdeildar Hauka til áratuga, Þorgeir Haraldsson, og Sveinn Sigurbergsson hjá Fjarðarkaupum. Voru þeir vel að þessum heiðri komnir. – Til hamingju!

Veðrið á Ásvöllum

Það hefur líklega ekki farið fram hjá neinum hinn mikli veðurhamur sem gengið hefur yfir landið undanfarinn sólarhring. Oft er hér á Ásvöllum vindasamt og engin undantekning var á því nú í morgunsárið. Við erum hins vegar ánægð með að tjón á munum og mannvirkjum er ekki sjáanlegt utan þess að einn kúpull fauk af […]

Fótboltanámskeið Hauka í vetrarfríinu

Haukar bjóða upp á fótboltanámskeið fyrir krakka í 1.-4. bekk dagana 20. og 21. febrúar frá kl. 9-12. Námskeiðið fer fram á gervigrasinu á Ásvöllum (mæting í vallarhúsið). Þjálfarar frá Haukum kenna á námskeiðinu ásamt leikmönnum meistaraflokka. Áhersla er á fótbolta sem leik. Þátttakendur þurfa að hafa með sér hollt nesti og vera klæddir eftir […]

Leli endurnýjar samning við knattspyrnudeild Hauka

Regielly Halldórsdóttir hefur skrifað undir nýjan samning við knattspyrnudeild Hauka sem gildir til næstu tveggja ára. Regielly, eða Leli eins og hún er jafnan kölluð, gekk til liðs við Hauka árið 2018 og hefur hún leikið 30 leiki með meistaraflokki og skorað níu mörk. Stjórn knattspyrnudeildar Hauka fagnar nýjum samningi við Leli og bindur miklar […]

Forsala miða á bikarleikinn er í dag og á morgun

Nú styttist í bikarleik Hauka og Skallagríms í undanúrslitum Geysisbikars kvenna sem fer fram n.k. fimmtudag kl. 20:15. Forsala aðgöngumiða verður á Ásvöllum í kvöld og annað kvöld frá kl. 18:30-20:00. Þeir sem vilja ná sér í miða á netinu geta gert það og þá er nauðsynlegt að versla aðeins í gegnum þennan miðasöluhlekk en […]

Fréttatilkynning frá Handknattleiksdeild Hauka

Aron Kristjánsson tekur við Haukaliðinu í vor Handknattleiksdeild Hauka hefur gert samning við Aron Kristjánsson um þjálfun karlaliðs Hauka að loknu yfirstandandi tímabili.  Aron tekur við liðinu af Gunnari Magnússyni sem er að ljúka sínu 5 tímabili með Haukaliðið. Aron þjálfaði Hauka síðast fyrir 7 árum og hefur víða komið við síðan þá. Frá þeim […]

Mikaela Nótt valin í lokahóp U17 í knattspyrnu

Mikaela Nótt Pétursdóttir hefur verið valin í leikmannahóp U17 ára landsliðs Íslands í knattspyrnu til að leika tvo vináttuleiki við Írland. Leikið verður á Írlandi 14. og 16. febrúar n.k.  Landsliðsþjálfari U17 kvenna er Jörundur Áki Sveinsson. Mikaela er fædd árið 2004 og er leikmaður í 3. flokki kvenna en hún spilaði þrjá leiki með […]