Kirkjuhlaup Hauka í Hafnarfirði annan í jólum 2015

Kirkjuhlaup Hauka fór fram annan í jólum frá Ástjarnarkirkju.  Um tíu leitið fóru hlauparar úr Haukunum og nærliggjandi hlaupahópum  að safnast saman í Ástjarnarkirkju þar sem Sr. Kjartan Jónsson og Haukamenn tóku á móti fólkinu. Fljótlega varð ljóst að mun meiri fjöldi var nú mættur til leiks en árið áður. Á ljósmyndinni sem tekin var […]

VIÐ SKOKKUM Í FRIÐI OG SPEKT – ALLIR VELKOMNIR

Kirkjuhlaup í Hafnarfirði ANNAN í jólum. Skokkhópur Hauka býður öllum í Kirkjuhlaup. Við hittumst tímanlega við Ástjarnarkirkju kl. 10:00. og byrjum með léttri Hlaupamessu. Við leggjum svo af stað í hlaupið kl. 10:30. Í fyrra skokkuðu um 105 ferskir hlauparar með okkur alls staðar að. Hlauparar frá Hlaupahópi FH, Stjörnunni, Hlaupahópi Álftanes, Bíddu aðeins, ÍR, […]

Haukar fljúga hátt!

Árið sem nú er að líða hefur verið okkur Haukum einstaklega gott þar sem saman hefur farið góður árangur íþróttafólks Hauka og verulega aukinn skilningur bæjarfulltrúa Hafnarfjarðar á stuðningi við íþróttastarf Hauka og hefja uppbyggingu Ásvalla að nýju. Síðast liðið vor var mjög gott fyrir okkur Hauka þar sem lið okkar í handbolta og körfu […]

Kkd Hauka búin að ráða nýjan leikmann hjá mfl. karla

Haukar hafa gengið frá ráðningu á nýjum erlendum leikmanni, en Stephen Madison var látinn fara í síðustu viku og spilaði ekki síðasta leikinn í deildinni á móti Hetti, sem Haukar unnu nokkuð sannfærandi. Nýji leikmaðurinn heitir Brandon Mobley og kemur frá nokkuð þekktum körfuboltaskóla, Seton Hall. Seton Hall spilar í hinni sterku Big East deild […]

Haukar – Valur kl. 14:00 á laugardag

Síðasti leikur Dominos deildar kvenna, fyrir jólafrí, verður háður á morgun, laugardag, kl. 14:00 í Schenkerhöllinni. Leikurinn er mjög mikilvægur fyrir bæði en Haukastelpurnar geta aftur náð efsta sæti Dominos deildar með sigri og verið á toppnum yfir hátíðirnar á meðan að Valsstúlkur geta með sigri komist yfir Keflavík og náð fjórða sætinu, sem er […]

Skemmtileg jólagjöf

Haukar eru með til sölu fallegt Hauka hálsmen og er það tilvalin jólagjöf fyrir allt Haukafólk Hálsmenið kostar kr. 4.990 og er selt í afgreiðslunni í íþróttamiðstöðinni á Ásvöllum. ATH – takmarkað upplag.