Haukar – Valur kl. 14:00 á laugardag

helenaSíðasti leikur Dominos deildar kvenna, fyrir jólafrí, verður háður á morgun, laugardag, kl. 14:00 í Schenkerhöllinni.

Leikurinn er mjög mikilvægur fyrir bæði en Haukastelpurnar geta aftur náð efsta sæti Dominos deildar með sigri og verið á toppnum yfir hátíðirnar á meðan að Valsstúlkur geta með sigri komist yfir Keflavík og náð fjórða sætinu, sem er síðasta sætið sem gefur sæ
ti fyrir úrslitakeppnina.

Við hvetjum fólk til að mæta á þennan síðasta leik hjá stelpunum og hvetja þær áfram í toppbaráttunni. Þær hafa staðið sig gríðarlega vel, eru að spila án útlendings og hafa leitt deildina í allan vetur.