Metþátttaka á golfmót Hauka

Metþátttaka á Golfmóti Hauka… sem haldið var á Keilisvelli á föstudaginn –  132 keppendur tóku þátt. Mótinu lauk með verðlaunaafhendinu um kvöldið þar sem glæsileg verðlaun voru afhent. Rauða jakkann hlaut í annað sinn  Kjartan Þór Ólafsson  hann fékk 38 punkta. Gula boltann hlaut Guðmundur Friðrik Sigurðsson á 36 punktum og  Haukabikarinn sem keppt var […]

ÍBV vann Hafnarfjarðarmótið

ÍBV sigraði Hafnarfjarðarmótið 2015 eftir sigur á Ír 37 – 23. Önnur úrslit í dagsins. Haukar 26 – 19 FH.  Markahæstir Hauka voru Adam Haukur, Einar Petur, Heimir Óli, og Elías Már með 5 mörk hver, Úrslit föstudagsins: Haukar – ÍBV 26 – 26 FH – ÍR 33 – 40

Kaffisamsæti Öldungaráðs

Nk. miðvikudag býður Aðalstjórn félagsins  Öldungaráði  Hauka og gestum til kaffisamsætis   á Ásvöllum. Tilefnið  er að  Öldungaráðið er að hefja sitt  25. starfsár. Jafnframt verður aðalfundur ráðsins haldinn. Samsætið hefst kl.  15 hér í Samkomusalnum og eru félagar hvattir til að taka með sér gesti og eiga saman góða stund.  

Framkvæmdir við gervigrasið hefjast á mánudaginn

Mánudaginn 31. ágúst hefjast framkvæmdir við gervigrasvöllinn á Ásvöllum, en verið er að skipta um gervigras og undirlag. Mikið verður því um stórtæk vinnutæki á svæðinu og er því nauðsynlegt að fara að gát. Æfingar halda áframa á grasvellinum og því þurfa allir, foreldrar, þjálfarar og forráðamenn að gæta þess að iðkendur séu ekki á […]

Öruggur sigur Hauka á Selfyssingum

Haukar unnu í gærkveldi 3-0 sigur á liði Selfoss í 19. umferð 1. deildar karla í knattspyrnu. Björgvin Stefánsson sem hefur svo sannarlega verið á skotskónum í sumar og var valinn í U21 landsliðið í vikunni gerði tvö mark og Zlatko Krickic gerði eitt mark. Það má segja að okkar strákar hafi klárað þennan leik […]

Æfingatafla körfuknattleiksdeildar komin á heimasíðu

Búið er að klára vinnu við æfingatöflu fyrir veturinn 2015/2016 og búið að ráða þjálfara á alla flokka. Hægt er að sjá æfingatöflu stúlkna hér:  http://www.haukar.is/?page_id=764 Hægt er að sjá æfingatöflu drengja hér:  http://www.haukar.is/?page_id=766   ATH æfingar byrja mánudaginn 31. ágúst ágúst skv. töflu.

Björgvin valinn í U21 landsliðið

Björgvin Stefánsson, leikmaður Hauka, hefur verið valinn í U21 landslið Íslands í knattspyrnu fyrir leiki gegn Frökkum og N-Írum í byrjun september. Björgvin hefur staðið sig frábærlega með Haukum í sumar en hann er nú markahæstur í 1. deildinni ásamt Viktori Jónssyni í Þrótti en báðir hafa skorað 15 mörk í 18 leikjum. Um er […]