Helgin framundan

Allir herrar mæta á Herrakvöldið í kvöld. Húsið opnar kl. 19.30. Aðalfundur handknattleiksdeildar er á laugardaginn kl. 14.00.. Á sunnudag mæta Haukar kl. 18.00 í Krikann og sjá stelpurnar okkar leika við FH-dömur. Eftir leikinn er haldið á Ásvelli og þar horfum við á Haukastrákana sem fá GróttuKR drengi í heimsókn.. Fjölliðamót hjá 6.flokki alla […]

SS-Bikarinn Undanúrslit

Dregið var í undanúrslitum SS-bikars karla og kvenna nú í hádeginu. Í karlflokki voru dregin saman: Haukar – Valur Stjarnan – Fram Þessir leikir fara fram 5.desember n.k. Í kvennaflokki voru dregin saman: Grótta KR – Stjarnan ÍBV – Haukar Þessir leikir fara fram 19.janúar.

SS-bikarinn Haukar-HK

Haukar unnu HK í bikarnum í kvöld. Jafnt var eftir venjulegan leiktíma 28-28 og höfðu Haukar það í framlengingunni og unnu 36-31. Í fyrri hálfleik voru Haukar 2 til 4 mörk yfir, staðan í hálfleik var 16-12. HK náði að jafna 18-18. Okkar menn náðu aftur forystunni og komust í 24-20. Jafnt var aftur 27-27 […]

SS-Bikar 8-liða úrslit karla

Nú mæta allir Haukar á Ásvelli í kvöld kl. 20.00 þegar við tökum á móti HK í 8-liða úrslitum SS-bikarsins. Við munum hvað var rosalega gaman á úrslitaleiknum í fyrra, en þá lögðum við einmitt HK í Höllinni. Þó svo strákarnir okkar hafi átt frábæra leiki í haust, þá er ekki spurning að áhorfendur geta […]

Herrakvöld Hauka

Hið árlega Herrakvöld Hauka verður í veislusal handknattleiksdeildar að Ásvöllum föstudaginn 30. nóvember. Húsið opnar kl. 19.30 og hefst borðhald stundvíslega kl. 20.30. Fyrir utan glæsilegan matseðil verður fjölbreytt dagskrá undir öruggri veislustjórn Konráðs Jónssonar. Þetta er skemmtun sem enginn sannur herramaður má láta fram hjá sér fara enda er lagt upp með að skemmtuninni […]

Spjallsvæðið

Spjallsvæði Hauka hefur nú verið opnað. Þar geta Haukar og aðrir handboltaáhugamenn spjallað um boltann. Verum jákvæð og sýnum þroska í umræðum. Gagnrýni er af hinu góða en nafnlausar persónuárásir og skítkast á ekki heima hér. Til þess að fara á spjallið smellið hér eða á tengilinn hér vinstra megin.

Essodeild ka Haukar-Þór

Haukar unnu Þórsara 34-32 í Esso-deildinni á Ásvöllum í gærkvöldi. Eitthvað stóðu norðandrengir í okkar mönnum, en í lokin tókst þeim að kyngja og unnu sinn níunda sigur í deildinni og tróna enn á toppnum. Leikurinn var jafn framan af, lítið um varnir og mikið skorað. Staðan í hálfleik var 17-18 fyrir Þórsara, en Haukar […]

Haukar-Þór

Vekjum enn meiri athygli á því að leik Hauka og Þórs hefur verið seinkað aftur til kl. 20.00. Leiðin að norðan var lengri og strengri en menn ætluðu. Mætum og sjáum hvað verður á boðstólum í bakarínu í kvöld.

Haukar – Þór

Athygli er vakin á því að leik Hauka og Þórs á sunnudaginn hefur verið flýtt til 17:00. Leikurinn átti að vera kl.20:00. Allir að mæta og sjá spútniklið vetrarins gegn núverandi meisturum sem nýverið tóku mosfellinga í konditoríið.

A-landslið kvenna

A-landslið kvenna fer í æfingaferð til Beglíu og Hollands 22.nóvmeber. Stefán Arnarson og Örn Ólafsson hafa valið eftirtalda leikmenn í ferðina. Berglind Hansdóttir Valur Helga Torfadóttir Víkingur Ágústa Björnsdóttir Grótta-KR Dagný Skúladóttir ÍBV Drífa Skúladóttir Valur Elva Hreggviðsdóttir Valur Guðmunda Ósk Kristjánsdóttir Víkingur Hafdís Hinriksdóttir FH Hafrún Kristjánsdóttir Valur Hanna Stefánsdóttir Haukar Harpa Melsted Haukar […]