17 mörk frá Hönnu í 16 marka sigri

Hanna Guðrún fór á kostum í kvöldÍ kvöld mættu Fylkisstelpur í heimsókn á Ásvelli. Þar mættu þær Haukastelpum í N1 deild kvenna. Fyrir leikinn voru Haukastelpur í fyrsta sæti deildarinnar með 29 stig en Fylkisstelpur í áttunda, og neðsta, sæti deildarinnar með 5 stig. Fyrirfram mátti því búast við stórsigri Hauka, sem varð raunin en Haukastelpur sigruðu með 16 mörkum þar sem Hanna Guðrún Stefánsdóttir fór á kostum og skoraði 17 mörk úr aðeins 20 skotum.

 

Það var aldrei spurning hvar sigurinn myndi enda í kvöld. Haukar náðu strax góðu forskoti og voru fljótlega komnar fimm mörkum yfir, 15 – 10. Í hálfleik var staðan 22 – 14 en þá var Hanna Guðrún búin að skora 10 mörk úr öllum regnbogans litum. Lítið fór fyrir Ramune í fyrri hálfleiknum en hún var tekin úr umferð alveg upphafi. Þrátt fyrir 10 mörk Hönnu í hálfleiknum skoruðu 7 Haukastelpur mörk í hálfleiknum.

 

Síðari hálfleikurinn var nánast spegilmynd fyrri hálfleiksins Hanna Guðrún hélt áfram að raða inn mörkum úr öllum regnbogans litum. Hanna skoraði 7 mörk í síðari hálfleiknum og skoraði því samtals 17 mörk í leiknum sem telst frábært. Eins og í fyrri hálfleiknum skoruðu margar Haukastelpur en einnig skoruðu 7 Haukastelpur í leiknum.  

Haukastelpur sigruðu sannfærandi sigur, 42 – 26, og halda þær efsta sætinu. Nú eru 17 umferðir búnar í deildinni og aðeins fjórir leikir eftir. Næsti leikur stelpnanna er gegn Val laugardaginn 14. mars en nú verður gerð leikjahlé í deildinni vegna úrslita í Eimskipsbikarnum. 

Similar Posts

  • Golfmót Hauka frekari upplýsingar!

    Vinsamlegast athugið. Mótsgjaldið í Haukamótið 2026 er kr 8.000,00. Skráning í Haukamótið hefst kl. 12.00 þann 18. september og skráningu lýkur 24. september kl. 20.00. Þátttökugjald er kr. 8.000 og greiðist við skráningu. Haukafélagar, konur og karlar, hafa þátttökurétt í mótinu, en félagsaðild í golfklúbbi er skilyrði fyrir þátttöku. Nefndin

  • Haukamótið í golfi 2026.

    Haukamótið verður haldið á Hvaleyrarvelli, föstudaginn 25. september nk. Opnað verður fyrir skráningu í Golfboxinu kl. 12.00 þann 18. september og skráningu lýkur 24. september kl. 20.00. Þátttökugjald er kr. 8.000 og greiðist við skráningu. Haukafélagar konur og karlar hafa þátttökurétt í mótinu, en félagsaðild í golfklúbbi er skilyrði fyrir þátttöku. Keppt verður til verðlauna…

  • Andlátsfrétt.

    Laugardaginn 13. júní síðastliðinn barst sú harmafregn að einn af öflugustu stuðningsmönnum Hauka, Guðjón Ágúst Sigurðarson, væri látinn. Guðjón og Herborg, eiginkona  hans, hafa starfað sem sjálfboðaliðar hjá handknattleiksdeild Hauka  áratugum saman og stuðningur þeirra við starf deildarinnar er ómetanlegt.  Guðjón sat í stjórn   handknattleiksdeildar Hauka um margra ára skeið, allt til dánardags. Við fráfall…

  • Lokahóf Hauka – Verðlaunahafar og kveðjur eftir tímabilið 2025–2026

    Handknattleiksdeild Hauka hélt lokahóf sitt í vikunni þar sem leikmenn, þjálfarar og sjálfboðaliðar komu saman og fögnuðu flottu tímabili. Fjölmargir einstaklingar voru heiðraðir fyrir frammistöðu sína og framlag til félagsins – og jafnframt kvöddum við nokkra leikmenn sem halda nú á ný mið eftir verðugt og mikilvægt starf í rauðu treyjunni. Verðlaunahafar tímabilsins Meistaraflokkur kvenna…

  • Sumaríþróttaskóli Hauka 2026

    Sumaríþróttaskóli Hauka 2026   Íþróttaskóli Hauka verður starfræktur sumarið 2026 fyrir börn fædd 2014-2019, en skólinn hefur verið starfræktur frá árinu 2007. Íþróttaskólinn er sameiginlegt verkefni allra deilda félagsins þar sem lögð er áhersla á fjölbreytta hreyfingu, þjálfun og námskeið við allra hæfi. Gert er ráð fyrir að iðkendur fái að kynnast sem flestum íþróttagreinum…