10 flokkur kvenna Íslandsmeistari

Haukar íslandsmeistarar 10 flokki kvennaHaukar urðu í dag Íslandsmeistarar í 10.flokki kvenna í körfu eftir jafnan og spennandi leik við Keflavík eftir 38 – 34 sigur á Keflavík. Haukastelpur eru þar með tvöfaldir meistarar í þessum flokki því liðið vann einnig bikarinn fyrr í vetur með fyrsta sigurleik sínum á móti Keflavík. Það var gríðargóð barátta leikmanna Hauka í vörn og fráköstum sem skilaði sigrinum á Keflavík í dag en lið Hauka tók alls 46 fráköst á móti 26 fráköstum Keflvíkinga. Silvía Rún Hálfdanardóttir átti enn einn stórleikinn fyrir Hauka en hún var í leikslok valinn besti leikmaður úrslitaleiksins með 21 stig, 13 fráköst, 4 stolna bolta og 2 varin skot.

Gríðarlega efnillegur flokkur sem Haukar eru að fá upp í þessum flokki. Á karfan.is má finna nánari umfjöllun um leikinn til hamingju stelpur!

10 flokkur kvenna Íslandsmeistari

Haukar íslandsmeistarar 10 flokki kvennaHaukar urðu í dag Íslandsmeistarar í 10.flokki kvenna í körfu eftir jafnan og spennandi leik við Keflavík eftir 38 – 34 sigur á Keflavík. Haukastelpur eru þar með tvöfaldir meistarar í þessum flokki því liðið vann einnig bikarinn fyrr í vetur með fyrsta sigurleik sínum á móti Keflavík. Það var gríðargóð barátta leikmanna Hauka í vörn og fráköstum sem skilaði sigrinum á Keflavík í dag en lið Hauka tók alls 46 fráköst á móti 26 fráköstum Keflvíkinga. Silvía Rún Hálfdanardóttir átti enn einn stórleikinn fyrir Hauka en hún var í leikslok valinn besti leikmaður úrslitaleiksins með 21 stig, 13 fráköst, 4 stolna bolta og 2 varin skot.

Gríðarlega efnillegur flokkur sem Haukar eru að fá upp í þessum flokki. Á karfan.is má finna nánari umfjöllun um leiikinn til hamingju stelpur!