Óli Jón skoraði!

Meistaraflokkur karla sigraði Reyni Sandgerði 10-1 í æfingaleik í Fífunni í gærkvöldi. Hápunktur kvöldsins var án ef þegar varnartröllið Óli Jón Kristinssson kom boltanum í mark andstæðinganna. Mark Óla Jóns var einkar glæsilegt og minnti mjög á mark Ríkharðs Daðasonar á móti Frökkum um árið – bara fallegra.

Margir aðrir leikmenn sem voru á skotskónum en Árni og Guðjón skoruðu báðir 2 mörk og Hilmar Trausti, Andri Janus, Guðbjörn, Kristján Ómar og Hilmar Geir skoruðu sitt hvert markið.

Næsti æfingaleikur Mfl. karla er á þriðjudaginn 28. febrúar í Reykjaneshöllinni á móti Njarðvík.