ÍBV-Haukar mfl.kvenna

Stelpurnar okkar gerðu ekki góða ferða til eyja í kvöld en þær töpuðu fyrir ÍBV 30-27.
Íbv spilaði vel i fyrri hálfleik og náð góðri forystu og stelpurnar okkar voru að elta allan leikinn. Í hálfleik var staðan 14-12 og mestur var munurinn fimm mörk. Undir lokin náðu stelpurnar okkar að minnka i eitt 27-26 og aftur 28-27 en nær komust þær því miður ekki.
Í heildina var leikurinn ekki nógu góður hjá okkur en baráttan var samt góð enda mættust tvö af toppliðum deildarinnar í kvöld.