ÍBV-Haukar leikur 2
Strákarnir okkar gerðu frábæra ferð til Eyja í gær og báru sigur á ÍBV eftir framlengdan leik. Staðan eftir venjulegan leiktíma var 31-31 en í framlengingunni tóku Haukar völdin og sigruðu glæsilega 35-39.
Heimamenn skoruðu fyrsta markið og voru yfir allan leikinn, náðu mest fimm marka forskoti. Í hálfleik var staðan 15-12 og þegar um tíu mín. voru eftir af leiknum var ÍBV með gott forskot. En strákarnir okkar eru ekki fæddir í gær og vita að leikurinn er ekki búinn fyrr en flautað er til leiksloka. Þeir keyrðu hraðann og jöfnuðu leikinn og knúðu fram framlengingu.
Haukar skoruðu fyrsta markið í framlengingu og var það í fyrsta skiptið í leiknum sem þeir voru yfir fyrir utan stöðuna 1-2 í byrjun leiks. Þeir voru komnir á bragðið og keyrðu yfir heimamenn og sigruðu glæsilega.
Staðan er núna 2-0 fyrir Hauka og næsti leikur er á fimmtudaginn kl. 19:40 á Ásvöllum. Það er ekkert flóknara en það að allir HAUKR mæta og styðja við bakið á strákunum okkar. Haukar eru í góðri stöðu en Eyjamenn eru núna upp við vegginn fræga og leggja væntanlega allt í leikinn. En strákarnir okkar ætla sér að klára dæmið og frábærir stuðningsmenn Hauka mæta að sjálfsögðu og hjálpa til við það.
ÁFRAM HAUKAR
