ÍBV-Haukar úrslit kvenna – leikur 2

Það var kominn tími til – Hafði ekki gerst síðan á síðustu öld !!! Í kvöld brutu stelpurnar okkar ísinn og unnu ÍBV úti í Eyjum. Lokatölur 24-25 og frábær sigur.

Stelpurnar okkar byrjuðu leikinn vel, skoruðu fyrsta markið og tóku frumkvæðið strax í upphafi. Þær voru með góða stöðu eftir um 10 mín.leik 4-7. ÍBV jafnaði 8-8 og hafði nokkur tækifæri á að komast yfir en vörnin hélt hjá okkur og héldum við eins til tveggja marka forskoti til hálfleiks. Þegar flautað var til leikhlés var staðan 13-14.

ÍBV komu vel stemmdar til síðari hálfleiks, jöfnuðu 14-14 og komust yfir 15-14 í eina skiptið í leiknum. Haukar jöfnuðu í 15-15 og og ÍBV jafnaði í 16-16. Þá kom góður kafli hjá Haukum, staðan 16-19, en ÍBV jafnaði 19-19 þegar síðari hálfleikur var hálfnaður. Haukar leiddu áfram með einu til tveimur mörkum en ÍBV jafnaði aftur 23-23 þegar um þrjár mín. voru eftir. Stelpurnar okkar héldu haus það sem eftir var leiks, en tæpt var það. En það var sigurinn sem skipti öllu mál þó naumur væri.

Stelpurnar okkar áttu fínan leik, vörnin var góð og sóknin gekk að mestu ágætlega. Þær gerðu þó heilmikið af mistökum sem verður að skrifast á spennuna.

Staðan í einvíginu er núna 2-0 fyrir okkur. Tveir frábærir sigrar en samt er ekkert unnið ennþá. Næsti leikur verður á Ásvöllum á fimmtudaginn kl. 19:40 og þá verður fjör og mikið gaman. Eyjastelpur komnar upp að veggnum fræga og mæta örugglega “dýrvitlausar” til leiks en okkar stelpur taka á móti þeim og ætla sér ekkert annað en sigur. Til þess þurfa þær allan þann stuðning sem við Haukar getum gefið og því er skyldumæting hjá öllum Haukum.
Nú styðjum við stelpurnar okkar til sigurs – Áfram Haukar.

Similar Posts

  • Golfmót Hauka frekari upplýsingar!

    Vinsamlegast athugið. Mótsgjaldið í Haukamótið 2026 er kr 8.000,00. Skráning í Haukamótið hefst kl. 12.00 þann 18. september og skráningu lýkur 24. september kl. 20.00. Þátttökugjald er kr. 8.000 og greiðist við skráningu. Haukafélagar, konur og karlar, hafa þátttökurétt í mótinu, en félagsaðild í golfklúbbi er skilyrði fyrir þátttöku. Nefndin

  • Haukamótið í golfi 2026.

    Haukamótið verður haldið á Hvaleyrarvelli, föstudaginn 25. september nk. Opnað verður fyrir skráningu í Golfboxinu kl. 12.00 þann 18. september og skráningu lýkur 24. september kl. 20.00. Þátttökugjald er kr. 8.000 og greiðist við skráningu. Haukafélagar konur og karlar hafa þátttökurétt í mótinu, en félagsaðild í golfklúbbi er skilyrði fyrir þátttöku. Keppt verður til verðlauna…

  • Andlátsfrétt.

    Laugardaginn 13. júní síðastliðinn barst sú harmafregn að einn af öflugustu stuðningsmönnum Hauka, Guðjón Ágúst Sigurðarson, væri látinn. Guðjón og Herborg, eiginkona  hans, hafa starfað sem sjálfboðaliðar hjá handknattleiksdeild Hauka  áratugum saman og stuðningur þeirra við starf deildarinnar er ómetanlegt.  Guðjón sat í stjórn   handknattleiksdeildar Hauka um margra ára skeið, allt til dánardags. Við fráfall…

  • Lokahóf Hauka – Verðlaunahafar og kveðjur eftir tímabilið 2025–2026

    Handknattleiksdeild Hauka hélt lokahóf sitt í vikunni þar sem leikmenn, þjálfarar og sjálfboðaliðar komu saman og fögnuðu flottu tímabili. Fjölmargir einstaklingar voru heiðraðir fyrir frammistöðu sína og framlag til félagsins – og jafnframt kvöddum við nokkra leikmenn sem halda nú á ný mið eftir verðugt og mikilvægt starf í rauðu treyjunni. Verðlaunahafar tímabilsins Meistaraflokkur kvenna…

  • Sumaríþróttaskóli Hauka 2026

    Sumaríþróttaskóli Hauka 2026   Íþróttaskóli Hauka verður starfræktur sumarið 2026 fyrir börn fædd 2014-2019, en skólinn hefur verið starfræktur frá árinu 2007. Íþróttaskólinn er sameiginlegt verkefni allra deilda félagsins þar sem lögð er áhersla á fjölbreytta hreyfingu, þjálfun og námskeið við allra hæfi. Gert er ráð fyrir að iðkendur fái að kynnast sem flestum íþróttagreinum…