Vilt þú gerast fréttaritari fyrir yngri flokk

Knattspyrnudeildin óskar eftir fréttariturum fyrir yngri flokkanna til að skrifa fréttir fyrir heimasíðu Hauka. Allar flokkar eru nú þegar með öflugar bloggsíður þar sem mikið af upplýsingum komast til skila til iðkendanna. Hins vegar vantar fleiri fréttir hingað inn á heimasíðuna fyrir þá sem hafa ekki áhuga á að lesa allt sem fer fram á bloggunum en langar að heyra í stuttu máli um það helsta sem er í gangi í hverjum og einum flokki.

Það þarf mjög takmarkaða kunnáttu á tölvur og heimasíður til að sjá um þetta starf! Áhugasamir sendið póst á fotbolti „hjá“ haukar.is

Nú er um að gera að setja sig í skáldastellingarnar og byrja að segja frá því sem er að gerast í flokki barns þíns eða þeim flokki sem þú fylgist vel með af einhverjum ástæðum.