Afríka mætir á Ásvelli

Rétt í þessu var dregið í fyrstu umferðir Bikarkeppni KSÍ. Meistaraflokkur karla fær 3.deildar lið Afríku í heimsókn þann 2.júní. Sá leikur er í 2. umferð keppninnar en bæði lið sitja hjá i fyrstu umferðinni.

Meistaraflokkur kvenna fær erfiðan andstæðing strax í fyrstu umferð Bikarkeppninnar en föstudaginn 30. maí kemur úrvalsdeildarlið Stjörnunnar í heimsókn.

Heil bíómynd hefur verið framleidd um knattspyrnufélagið Afríku sem Andri Marteins og félagar munu eflaust liggja yfir og stúdera fyrir leik liðanna í Bikarkeppni KSÍ.