Undanúrslitaleikur: Haukar – Leiknir

Haukar leika við Leikni úr Reykjavík á morgun, laugardaginn 30. apríl, í Egilshöll klukkan 16:30, í undanúrslitum B-deildar Deildabikarkeppninnar.

Leiknir var eitt sterkasta liðið í 2. deildinni í fyrra og var aðeins hársbreidd frá því að tryggja sér 1. deildar sæti. Það sem af er vori hefur liðið verið að ná mörgum góðum úrslitum gegn sterkum liðum og burstuðu til að mynda Víking Ólafsvík 5-1 í sínum síðasta leik. Það má því búast við hörkurimmu í Egilshöllinni á morgun.

Við hvetjum alla stuðningsmenn til þess að mæta og styðja við bakið á Haukunum, sem og nýta tækifærið til að berja augum nýjasta leikmann Hauka: Svavar Sigurðsson.