U23: Sigur gegn Fylki

Þá var komið að öðrum leik hjá U23 eftir tap í fyrsta leiknum gegn Val (2-4). Leikmenn 2. flokks voru látnir byrja leikinn að auki Davíð, Bjarka, Lalla og Amirs í markinu. Leikið var á gervigrasi og byrjaði leikurinn að krafti. Áttum við nokkur gullin tækifæri til að komast yfir í fyrra hálfleik en allt kom fyrir ekki. Það voru hins vegar Fylkismenn sem skoruðu fyrsta markið og það kom á 31. mínútu. Staðan var þannig 1-0 í hálfleik, Fylki í vil. Í hálfleik var hálfu liðinu skipt út, Jöri fór í markið, Arnar Steinn og Ómar komu inn fyrir Andra og Guðbjörn, Geoff kom inn fyrir Guðjón og Hemmi fyrir Ella. Við vorum sterkari aðilinn í seinni hálfleik og uppskárum með tveimur mörkum. Öðru frá Úlla eftir góðan sprett frá Arnari og síðan skoraði hann sjálfur eftir að hafa eftir einn á móti markmanni.

Lokatölur eru því 2-1 okkur í vil