Toppslagur gegn Fjölni í Grafarvoginum í kvöld. Upphitun á English Pub og rúta á leikinn!

Haukar

Haukar mæta Fjölni í 1. deild karla í kvöld og hefst leikurinn kl. 20:00 á Fjölnisvellinum í Grafarvogi.  Haukar í horni og aðrir stuðningsmenn ætla að hita upp fyrir leikinn á English Pub í Hafnarfirði frá kl. 18:00 en rúta á leikinn fer kl. 19:15.

Um er að ræða afar mikilvægan leik en okkar menn eru sem stendur í öðru sæti deildarinnar með 19 stig, jafn mörg stig og efsta lið deildarinnar sem er Víkingur frá Ólafsvík. Fjölnir eru í þriðja sæti með 18 stig þannig að um alvöru toppslag er að ræða.

Nú er um að gera að fjölmenna í Grafarvoginn og hvetja okkar menn til sigurs!

Áfram Haukar!