Tap gegn fimleikastrákunum

Í kvöld mættust Haukar og FH á Kaplakrikavelli þeirra FH-inga. Leiknum lauk með 3-1 sigri FH í hörku fótboltaleik. Staðan í hálfleik var 1-0 fyrir FH og þeir bættu síðan við tveimur mörkum í seinni hálfleik áður en Arnar Gunnlaugsson minnkaði muninn fyrir Hauka úr vítaspyrnu.

2654 áhorfendur voru á Kaplakrikavelli og var ágætis stemming á vellinum en Hersveit okkar Haukamanna hélt uppi stuðinu allan leikinn.

Næsti leikur Hauka er sex stiga leikur, þó liðið fái nú bara þrjú stig fyrir sigur í þeim leik en þá taka Haukar á móti Selfossi. Sá leikur er næstkomandi fimmtudag klukkan 19:15.

Hér að neðan er umfjöllun og viðtöl um og eftir leik frá Fótbolti.net

 

Umfjöllun um leikinn, frá Fótbolti.net

 

Viðtal við Arnar Gunnlaugsson, frá Fótbolti.net