Stelpurnar leika til úrslita: Leikurinn á KRTV

HaukarHaukar áttu tvö lið í undanúrslitum yngri flokka í dag. Strákarnir í 11. flokki eru ríkjandi Íslandsmeistarar en þeir töpuðu í hörkuleik gegn KR 74-81. Kári Jónsson var með 34 stig og Jónas Torfason setti sex stig og tók 14 fráköst.

Stelpurnar í 10. flokki lögðu Njarðvík 49-27 og leika því til úrslita kl. 11.00 í fyrramálið gegn Keflavík. Sylvía Hálfdanardóttir var stigahæst með 19 stig og Þóra Kristín var með tvennu en hún setti 10 stig og tók 11 fráköst.

Úrslitaliekurinn verður í beinni á KRtv en leikið er í DHL-höllinni.

Vonandi fjölmenna Haukamenn í fyrramálið og hvetja stelpurnar til dáða.