Seinni úrslitahelgi yngri flokka: Haukar í eldlínunni

Bikarmeistararnir verða í eldlínunni um helginaÚrslit yngri flokka í körfunni klárast um helgina þegar seinni úrslitahelgin fer fram. Að þessu sinni er leikið í DHL-höllinni. Stelpurnar í 10. flokki kvenna og strákarnir í 11. flokki spila í undanúrslitum á morgun. Stelpurnar hefja leik kl. 12.00 og strákarnir kl. 17.00.

Stelpurnar etja kappi við Njarðvík og strákarnir við KR.

Við hvetjum alla að fjölmenna í DHL-höllina og hvetja krakkana áfram. Við höfum verið dugleg að mæta í vetur að hvetja krakkana okkar í úrslitum og það skiptir þau miklu máli að við fjölmennum öll.

Áfram Haukar!!!!