Biskup Íslands heimsótti Ásvelli

HaukarSíðastliðinn mánudag heiðraði biskup Íslands, Agnes M. Sigurðardóttir, Haukana með heimsókn hingað í Íþróttamiðstöðina.

Í för með biskupi voru fulltrúar af biskupsstofu auk sóknarprests Ástjarnarsóknar og formanns sóknarnefndar.

Farin var skoðunarferð um húsið og starfsemi félagsins kynnt gestunum. Að lokum voru fram bornar léttar veitingar og biskupi afhent gjöf til minningar um ánægjulega heimsókn.