Stórleikur hjá stelpunum í körfuboltanum á laugardag!

Poweradebikarinn 8-liða úrslit
Ágætu Haukafélagar, nú heldur baráttan áfram í bikarnum og mótherjar okkar í 8-liða úrslitum á laugardaginn kl.16:00 er lið Hamars frá Hveragerði. Haukastúlkur sýndu fádæma kraft í 16-liða úrslitum gegn KR þar sem þær snéru vonlausri stöðu í framlengingu og sigur.

Vonandi tekst stelpunum að spila toppleik gegn Hamri því Hvergerðingarnir eru sýnd veiði en ekki gefin og hafa verið að endurheimta góða leikmenn undanfarið úr meiðslum ásamt því að vera með tvo öfluga erlenda leikmenn. Það er mjög mikilvægt að fá heimaleiki í bikarkeppninni en það verður líka að nýta það til hins ítrasta og styðja við stelpurnar í bráttunni.

Allt kapp verður lagt á að gera umgjörð leiksins sem besta og væntanlega verður eitthvað um óvæntar uppákomur, bæði innan- og utanvallar. Svo berjum við bumbur og notum klöppur ásamt góðum skammti af jákvæðum hvatningarópum til að tryggja stelpurnar inn í undanúrslit.

Allir í Schencker-höllina á Ásvöllum kl.16:00 á laugardag. Haukar í horni fá að sjálfsögðu eitthvað góðgæti í VIP stúkunni og því margt í boði á þessum sankallaða stórleik! ÁFRAM HAUKAR!!!