Silfur hjá 10. flokki

Margrét Rósa Hálfdanardóttir skorar 2 af 21 stigi sínuStúlknaflokkur beið ósigur gegn sterku liði Keflavíkur í úrslitum 10. flokks kvenna í dag en leikið var í Smáranum. Haukaliðið barðist mjög vel og stóðu í Keflvíkingum framan af en svo fór að Keflavík sigraði með 18 stigum 74-56. Haukar lentu í öðru sæti Íslandsmótsins og eru því silfurhafar í 10. flokki kvenna

Margrét Rósa Hálfdanardóttir var stigahæst Haukastúlkna með 21 stig og að auki fiskaði hún 11 villur á lið Keflavíkur.

Silfur hjá 10. flokki

Freydís Rut Árnadóttir að sækja að körfu Keflvíkinga í dagStelpurnar í 10. flokki kepptu í dag til úrslita gegn Keflavík í bikarnum. Keflavíkurliðið var talið fyrir leikinn mun sigurstranglegra og svo kom á daginn að þær unnu góðan sigur 53-34. Haukastelpur létu stúlkurnar frá Bítlabænum þó hafa fyrir hlutunum og stóðu sig með sóma.

Byrjunin varð Haukum að falli en Keflavík komst í 16-3. Haukastelpur náðu að minnka muninn og eftir einn leikhluta var staðan 18-6. Haukar minnkuðu muninn í 18-8 en þá kom ágætur kafli hjá Keflavík en í hálfleik var staðan 25-14.

Haukar héldu áfram að stríða Keflavík og unnu þær þriðja leikhluta með einu stigi og munurinn tíu stig þegar lokaleikhlutinn hófst 40-30. Í 4. leikhluta voru Keflvíkingar sterkari og unnu að lokum 53-34.

Haukastelpur sýndu frábæra takta á köflum og mega vera mjög stoltar af dagsverkinu. Margrét Rósa Hálfdanardóttir var stigahæst hjá Haukum með 18 stig en hún tók einnig 10 fráköst. Lovísa Björt Henningsdóttir skoraði 9 stig og tók 6 fráköst. Freydís Rut Árnadóttir var með 4 stig og Aldís Braga Eiríksdóttir setti þrjú stig.

Umfjöllun og myndasafn úr leiknum á Karfan.is

Lovísa Björt Henningsdóttir og Margrét Rósa Hálfdanardóttir