Sigurganga Hauka heldur áfram

Haukarstelpur unnu KR-inga í kvöld 65-57 og halda þær áfram sigurgöngu sinni. Eru þær nú búnar að vinna 13 leiki í röð í Iceland Express-deild kvenna.

Það var frábær spilamennska í upphafi seinni hálfleiks sem var lykillinn að sigri Hauka. Varnarleikur þeirra var frábær og áttu KR-ingar í miklum vandræðum með að skora.

Endaspretturinn var nokkuð spennandi en Haukastelpur stóðustu pressuna og unnu góðan sigur.

Stigahæst hjá Haukum var Slavica Dimovska með 20 stig og næst henni var Kristrún Sigurjónsdóttir með 12 stig.

Næsti leikur Hauka er gegn Hamri á útivelli miðvikudaginn 4. febrúar.

Myndasafn úr leiknum á Karfan.is

Staðan í deildinni.

Mynd: Monika Knight nýr leikmaður Hauka í baráttunni en hún skoraði 7 stig í leiknumstefan@haukar.is