Haukar taka á móti Hrunamönnum

Haukar fá Hrunamenn í heimsókn í 1. deild karla í körfuknattleik í kvöld og hefst leikurinn kl. 20:30.

Haukar sigruðu fyrri leik liðana með 16 stigum á erfiðum heimavelli Flúðamanna 86-102.

Haukar sitja í þriðja sæti 1. deildar með jafn mörg stig og Valur eða 16 talsins og getur hirt annað sætið með sigri í kvöld. Hrunamenn eru hinsvegar í sjöunda með 8 stig.

Mynd: Hart var barist í síðustu viðureign þessara liða og hér er Helga Einarssyni hjálpað á fætur – stefan@haukar.is