Sigrar í æfingaleikjum hjá Meistaraflokkunum

Meistaraflokkar kvenna og karla spiluðu báðir æfingaleiki um helgina. Á föstudagskvöldið rúlluðu Haukastelpurnar upp grönnunum í FH 7-1 þar sem Fitore skoraði þrennu og Sara Björk 2 mörk.

Á sunnudagskvöldið léku karlarnir svo við 1. deildarlið Njarðvíkur í Fífunni. Þeim leik lauk með sannfærandi sigri Hauka 4-1. Staðan var 3-0 í hálfleik eftir mörk Kristjáns Ómars, Hilmars Geirs og Ómars Karls. Í seinni hálfleik bætti svo Kristján Ómar við öðru marki, áður en Njarðvík náði að klóra í bakkann.