Jón Hákon náði frábærum árangri á Íslandsmóti Barna sem haldið var í gær, laugardaginn 27. janúar.
Jón fékk 6 vinninga af 8 mögulegum og lenti í 4-9 sæti af 68 keppendum sem er hreint frábært.
Fleiri keppendur komu úr Haukum og má sjá árangur þeirra á heimasíðu mótsins http://www.skaksamband.is/index.php?option=content&task=view&id=354&Itemid=185
Þar eru einnig myndir frá mótinu.