Hin unga og efnilega Sara Björk Gunnarsdóttir sem í fyrradag framlengdi samning sinn til 2010, fékk í morgun úthlutaðan styrk úr afrekskvennasjóði Glitnis og ÍSÍ.
Sara fær hálfa milljón krónga vegna einstaklingsþjálfunar á komandi tímabili úr sjóðnum.
Sara er ein af þrem íþróttakonum sem fá styrkinni.
Afrekskvennasjóður Glitnis og ÍSÍ hefur það að markmiði að styðja við bakið á afrekskonum í íþróttum og gera þeim betur kleift að stunda sína íþrótt og ná árangri.
Alls bárust 52 umsóknir í Afrekskvennasjóðinn að þessu sinni.
Við óskum Söru Björk til hamingju með styrkinn.